Það stefnir í sannkallaða fótboltaveislu í miðbæ Selfoss á næstu vikum þegar stór risaskjár verður settur upp fyrir stuðningsfólk sem vill upplifa leikina á HM í góðum félagsskap undir berum himni. Skjárinn hefur verið fastur liður undanfarin sumur þegar stórmót eru í gangi og vinsældirnar aukist með hverju árinu. Á leikdögum hefur Brúartorg fyllst af fólki á öllum aldri, allt frá heimamönnum til ferðamanna sem stoppa við til að njóta stemningarinnar. Fastlega má búast við að slíkt verði einnig uppi á teningnum nú í sumar, eins og kemur fram í tilkynningu.
Fótboltaveisla í miðbæ Selfoss