Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, undirbýr samtal þjóðar leitt af ungu fólki í október þegar 40 ár verða frá leiðtogafundinum í Höfða. Hún segir að þjóðin verði að vakna, líta upp úr samfélagsmiðlum og skoða hvað eigi að koma í staðinn. Það sé ekki nóg að setja reglur og vegrið.
Fagnar öllu sem gefur okkur frið frá athyglissamfélaginu
Samfélagsmiðlanotkun var eitt af því sem fjallað var um á heimsþingi um gervigreind til góðs sem haldið var á dögunum í Genf í Sviss. Forseti Íslands tók þátt í stofnun alþjóðlegrar ráðgjafanefndar á þinginu.
Í mörgum löndum hafa verið sett boð og bönn um samfélagsmiðlanotkun ungs fólks og nú er frumvarp eru frumvarpsdrög í samráðsgáttinni hér um að banna börnum yngri en 15 ára að nota samfélagsmiðla.
Halla hefur talað fyrir því að samfélagið setji sér einhvers konar vegrið eða skjólbelti sérstaklega til að vernda börn og ungmenni.
„Ég fagna þessari umræðu. Ég fagna öllu sem gefur okkur smá pásu, smá frið frá þessu athyglissamfélagi sem ég tel að hafi rænt okkur ró og okkar mikilvægustu tengslum. Sem forseti held ég að það sé ekki nóg að við tölum um hvað þarf að takmarka eða taka í burt eða reglusetja fyrir – heldur þurfum við að segja hvað kemur í staðinn.“
Þar kallar forsetinn eftir umbreytingu í menntakerfinu með því að styðja kennara og skóla til þess að búa til tengsl að nýju hjá ungu fólki. Æfa þurfi að nýju tengslin við hvert annað og samtalið.
„Allt þetta er ég núna að vinna með mörgu ungu fólki og hreyfingum í landinu, að undirbúa samtal þjóðarinnar sem mun eiga sér stað í október þegar við minnumst samtals sem hafði mikil áhrif á þróun heimsmála á þeim tíma fyrir 40 árum þegar þjóðhöfðingjar stórveldanna hittust hér.“
Unga fólkið eigi að leiða samtalið og fjalla um þær áskoranir sem fylgi samfélagsmiðlum og gervigreind.
„Ég held að við þurfum að vakna, við þurfum að tala saman og við þurfum að setja okkur sýn og einhvers konar staðla og viðmið sem tryggja að ógnirnar beri okkur ekki ofurliði en tækifærin fái að fara í hendur sem flestra,“ segir Halla.