Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra vill að Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands nái saman um þær aðgerðir sem þau vilji sjá af hendi ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum.
„Þetta eru þeir aðilar á vinnumarkaði sem þarf að vera traust á milli og ég myndi gjarnan vilja sjá að þau komi sér saman um þær aðgerðir sem þau myndu vilja sjá af hálfu ríkisstjórnarinnar,“ segir hún.
Verkalýðshreyfingin hefur stigið fram og sagt að stjórnvöld og atvinnurekendur verði að axla ábyrgð á erfiðu efnahagsumhverfi og grípa til aðgerða. Að öðrum kosti verði kjarasamningum sagt upp í haust.
Kjarasamningar voru undirritaðir í mars 2024 til fjögurra ára en hægt er að segja þeim upp ef verðbólga fer yfir 4,7 prósent.
Hún segist ekki ætla að spá fyrir um næstu vaxtaákvörðun, hún treysti Seðlabankanum. Leysa þurfi þessi mál óháð því hvernig þjóðaratkvæðagreiðslan í lok mánaðarins fari.
En ertu áhyggjufull yfir því að það sé vantraust í allri þessari umræðu milli aðila?
„Það liggur alveg fyrir að væntingar og traust á mörkuðum og milli aðila er eitt stærsta einstaka málið þegar kemur í samningum líka í þróun efnahagsmála í hagfræði almennt en við getum ekki endalaust leyst kjarasamninga með því að koma með stóra aðgerðapakka sem eru ófjármagnaðir,“ segir Kristrún.