Forsætisráðherra óskar Sjálfstæðismönnum góðs gengis

Forsætisráðherra óskar Sjálfstæðismönnum góðs gengis

Forsætisráðherra óskar Sjálfstæðismönnum góðs gengis

Meirihlutaviðræður eru ekki farnar af stað í Norðurþingi að sögn Helenu Eydísar Ingólfsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins.

Meirihlutinn í Norðurþingi féll í kosningunum um helgina en áður samanstóð hann af Framsóknarflokki og Sjálfstæðisflokki. Framsóknarflokkurinn missti töluvert fylgi og einn mann sem varð til þess að þessir tveir flokkar geta ekki starfað saman án aðkomu þriðja flokksins.

Þrír flokkar með tvo fulltrúa

Sjálfstæðisflokkurinn er stærstur flokka en er með tvo fulltrúa kjörna. Það eru sömuleiðis Framsóknarflokkurinn og Samfylkingin. Þrír flokkar eru svo með einn fulltrúa kjörinn: Óskalistinn, V-listi VG og óháðra og Miðflokkurinn. Það er því ljóst að þrjá flokka þarf til að mynda meirihluta.

Samkvæmt Helenu Eydísi er búið að heyra í öllum framboðunum og einhverjar þreifingar farnar af stað, sumar dýpri en aðrar en þó ekkert formlegt. Staðan er flókin og töluverð óvissa með framhaldið.

Hún leiðir þessar viðræður eins og staðan er núna en að hennar mati hefur Sjálfstæðisflokkurinn, sem stærsti flokkurinn, það umboð frá kjósendum.

Sjálfstæðisflokkurinn hlaut góða kosningu á Akranesi í nýafstöðnum kosningum eða um 33,6%. Flokkurinn er því með þrjá fulltrúa í bæjarstjórn. Framsóknarflokkurinn og Samfylking fengu tvo menn kjörna í bæjarstjórn en flokkarnir missa báðir einn bæjarfulltrúa frá seinasta kjörtímabili.

Viðreisn og Miðflokkur fengu tvo bæjarfulltrúa kjörna, flokkarnir eru báðir að koma nýir inn í bæjarstjórn Akraness.

Meirihlutaviðræður á milli Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks eru þegar hafnar. Líf Lárusdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokks, segir að viðræðum miði vel áfram, líklegt sé að flokkarnir taki vikuna í meirihlutaviðræðurnar.

Sjálfstæðisflokkurinn í Árborg heldur sínum sex fulltrúum í bæjarstjórn frá því í kosningum fyrir fjórum árum og verður þar með í meirihluta annað kjörtímabilið í röð.

Framsókn og Samfylkingin og óháðir héldu sínum bæjarfulltrúum, Viðreisn fékk einn fulltrúa kjörinn í bæjarstjórn en þetta er í fyrsta skipti sem flokkurinn býður fram í sveitarfélaginu.

Sveinn Ægir Birgisson, formaður bæjarráðs Árborgar, segir Sjálfstæðisflokkinn ekki hafa rætt möguleikann á mögulegu meirihlutasamstarfi við aðra flokka. Sjálfstæðisflokkurinn hafi seinasta kjörtímabil verið í hreinum meirihluta og unnið þétt og náið með öðrum flokkum í bæjarstjórn; líklegt sé að lendingin verði sú sama í ár.

Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, segir að árangur flokksins í sveitarstjórnarkosningum á landsbyggðinni hafi verið ánægjulegur en að í borgarmálum þurfi Samfylkingin að byggja aftur upp traust.

Kristrún birti færslu um úrslit kosninganna á Facebook-síðu sinni í hádeginu. Þar segir hún að Samfylkingin hafi fjölgað fulltrúum sínum í sveitarstjórnum um helming, þeir séu nú 38 talsins sem sé það næstmesta í sögu flokksins.

Hún segir þó ljóst að flokkurinn hafi sett markið hærra.

„Sjálfstæðisflokkur verður nú í forystu fyrir fjölmennustu sveitarfélögum landsins, og þar á meðal í Reykjavík. Ég óska þeim góðs gengis og við munum leggja okkur fram við að eiga áfram gott samstarf á milli ríkis og sveitarfélaga,“ segir forsætisráðherra en tekur fram að Samfylkingin muni veita harðri hægripólitík sem komi niður á vinnandi fólki kröftuga andstöðu.

„Í borgarmálum þarf Samfylking að byggja aftur upp traust. Þó að flokkurinn hafi haldið sínum fimm fulltrúum í borgarstjórn þá er þetta ljóst. Við tökum það til okkar. Þessi uppbygging hefst hjá nýrri forystu okkar í borginni strax í dag. Enda tekur tíma að vinna traust og það getum við aðeins gert með verkum okkar.“

„Það eru allir að tala við alla. Við erum að tala við Framsókn á fullu,“ segir Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði. Hann segir líklegast að flokkarnir vinni áfram saman á nýju kjörtímabili.

Staðan yrði flókin ef fleiri flokkar kæmu inn í það samstarf. Til standi að funda með Valdimar Víðissyni, oddvita Framsóknarflokksins, í dag.

Þannig að þið eruð að hefja formlegar viðræður í dag?

„Við getum sagt það, já.“

Sjálfstæðisflokkurinn missti einn sveitarstjórnarmann í Hafnarfirði og er með þrjá, jafn marga og Framsóknarflokkurinn, sem bætti einum við sig.

Samfylkingin missti tvo menn og heldur tveimur, Viðreisn bætti við sig einum og er þá með tvo meðan Miðflokkurinn náði inn sínum fyrsta sveitarstjórnarmanni í Hafnarfirði.

Oddvitar þeirra flokka sem fengu borgarfulltrúa kjörna mættust í Silfrinu í gær. Oddvitarnir voru í lok þáttar beðnir um að nefna hvaða breytingar borgarbúar yrðu strax varir við ef þeir myndu komast í meirihluta borgarstjórnar.

Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar segir flokkinn ávallt hafa talað fyrir því að taka þurfi til í miðlægum kerfum borgarinnar og sömuleiðis sé það í forgrunni að skólar Reykjavíkurborgar nái aftur forystu í skólamálum.

Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar, telur mikilvægt að borgarbúar verði varir við breytingar strax í sumar. Þá lagði hann til að ráðist yrði í hreinsunarátak í borginni.

„Ég væri til í að sjá gul vesti um alla borg að þrífa, hreinsa götur og garða og beð,“ borgarbúar fái tilfinningu fyrir því að borgin starfi í þeirra þágu.

Hildur hefur bæði nefnt mögulegt þriggja flokka meirihlutasamstarf við annars vegar Framsókn og Viðreisn og hins vegar tveggja flokka samstarf við Miðflokk.

Ari segir að fyrsta skref Miðflokksins væri að ná samningi við hin sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins um að afnema samninginn um vaxtarmörk, hann hafi meðal annars áhrif á lóðaverð, íbúðaverð og leiguverð.

Hildur segir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi í kosningabaráttunni alltaf tekið mið af þremur verkefnalistum, þeir séu nátengdir kosningaslagorði flokksins, strax. Strax í sumar segir Hildur að taka þurfi erfiðar ákvarðanir, í því samhengi nefnir hún til að mynda niðurskurð sem betra sé að fara strax í.

Reykjavík vill Hildur að verði að borg sem betra sé að eignast börn í og búa. Eins vill hún að skólar Reykjavíkur verði aftur komnir í fremstu röð, þar sem börnum finnist gott að búa finnist fólki gott að búa.

Fréttastofa hefur reynt að ná tali af Hildi Björndóttur í morgun en hún hefur ekki svarað símtölum og smáskilaboðum enn sem komið er.

Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar, Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar og Ari Edwald, oddviti Miðflokks, ræddu stuttlega við fréttastofu í morgun. Þau vildu lítið segja en eru að spá í spilin og velta fyrir sér kostunum í stöðunni.

Þau eru öll opin fyrir samtali um myndun meirihluta með Sjálfstæðisflokki. Það er orðið nokkuð ljóst að nýr meirihluti í borginni verður myndaður með einhverri blöndu af Sjálfstæðisflokki, Miðflokki, Viðreisn og Framsókn.

Ólíklegt þykir að meirihluti verði myndaður í borginni í dag.

12 borgarfulltrúa þarf til að mynda meirihluta. Þrjár sviðsmyndir virðast vera í stöðunni:

  1. Tveggja flokka, 12 manna meirihluti Sjálfstæðisflokks og Miðflokks.
  2. Þriggja flokka meirihluti Sjálfstæðisflokks, Miðflokks og Framsóknar.
  3. Þriggja flokka meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar.

Meirihlutaviðræður eru hafnar milli Byggðalistans og Sjálfstæðisflokksins í Skagafirði. Byggðalistinn vann mikinn kosningasigur og fékk 3 menn kjörna. Eyþór Fannar Sveinsson, oddviti Byggðalistans, sagði frá þessu í Morgunvaktinni á Rás 1 í morgun.

Meirihlutinn hélt velli í Skagafirði en þrátt fyrir það verður breyting. Meirihlutinn samanstóð af Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki. Framsókn tapaði manni og tæplega 10% fylgi frá því 2022.

Áframhaldandi samstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknar hefði dugað fyrir meirihluta, en saman fengu flokkarnir fimm fulltrúa kjörna, af þeim 9 sem sitja í sveitarstjórn. Framsóknarflokkurinn hafði verið stærsti flokkurinn í 20 ár í Skagafirði og verið í meirihluta.

Breyting varð á því þar sem Byggðalistinn er orðinn stærsti listi sveitarfélagsins og leiðir meirihlutaviðræður við Sjálfstæðisflokkinn. Saman fá þeir sex menn kjörna og mynda því sterkan meirihluta í Skagafirði.

Nú stendur yfir fundur L-listans, Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins á Akureyri um væntanlegt meirihlutasamstarf. Þetta er annar fundur flokkanna á jafn mörgum dögum en viðræður hófust strax í gær.

Fundurinn hófst klukkan 10:00 en ekki er vitað hvað hann stendur lengi.

Samkvæmt Berglindi Ósk Guðmundsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins á Akureyri og Óðni Svan Óðinssyni, oddvita L-listans, var góður hugur fyrir komandi viðræðum og töldu þau bæði miklar líkur á því að þessi meirihluti yrði að veruleika.

Málefnaágreiningur væri lítill og mikill vilji til samstarfs.

Hildur Björnsdóttir segist frá sér numin af þakklæti eftir nýafstaðnar kosningar. Þetta segir hún í færslu á Facebook síðu sinni.

Sjálfstæðisflokkurinn var með 32,9% fylgi í Reykjavíkurborg. Hildur segir að úrslitin sýni styrk flokksins.

„Úrslitin sýna glöggt hvað við sjálfstæðismenn í Reykjavík getum gert þegar við snúum bökum saman – og hvaða árangri við getum náð með samstilltum og öflugum framboðslista.“

Hildur segir það muna vera heiður lífs síns að starfa í þágu borgarbúa næstu árin.

Oddvitar þeirra framboða sem hlutu kjör í borgarstjórn Reykjavíkur hitta Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokks, í dag.

Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vinstrisins, segir að áhyggjuraddir séu uppi í samfélaginu um myndun á mögulegri hægri stjórn.

Hildur segist ekki kæra sig um að leiða meirihluta þar sem fordómar gagnvart minnihlutahópum eða rasismi séu í öndvegi eða liðnir.

Formaður yfirkjörstjórnar í Reykjavík segir að minnka megi þrýsting á starfsfólk á kjörstað með því að breyta kosningalögum svo hefja megi talningu fyrr. Þrýstingur á að tilkynna fyrstu tölur auki líkur á mistökum.

Samkvæmt kosningalögum má ekki byrja að telja atkvæði fyrr en kjörstöðum hefur verið lokað á kjördag. Við yfirferð yfirkjörstjórnar Reykjavíkur kom í ljós misræmi milli lesinna talna á kjörfundi og talinna atkvæða vegna innsláttarvillu í talningarskjali.

#forsætisráðherra #gengis #góðs #sjálfstæðismönnum #óskar


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-05-18-forsaetisradherra-oskar-sjalfstaedismonnum-gods-gengis-475778

📰 Aðrar fréttir

COVID lék Stefán veitingakóng grátt og dómstólar sýna honum enga miskunn
📅 08.10.2026 👁️ 1
COVID lék Stefán veitingakóng grátt og dómstólar sýna honum enga miskunn
Landsréttur hefur staðfest dóm yfir Stefáni Magnússyni fyrir skattalagabrot í rekstri nokkurra mjög þekktra og vinsælla veitingastaða. Stefán var saka...
Fort Hood shooter's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says
📅 08.10.2026 👁️ 1
Fort Hood shooter's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says
"We'll make sure that people are able to watch it," the US Defence Secretary Pete Hegseth said on Thursday.
Ætla að streyma af­töku í beinni - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 1
Ætla að streyma af­töku í beinni - Vísir
Þetta verður í fyrsta sinn sem herinn tekur mann af lífi með aftökusveit frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar. Hasan skaut þrettán óvopnaða hermenn t...
Halla vísar ásökunum um „leikrit“ til föðurhúsanna
📅 08.10.2026 👁️ 1
Halla vísar ásökunum um „leikrit“ til föðurhúsanna
Halla Gunnarsdóttir formaður VR vísar ásökunum Sólveigar Önnu Jónsdóttur formanns Eflingar um að kjaraviðræður VR við Samtök atvinnulífsins hafi verið...
Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 1
Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú - Vísir
Dorrit er fædd í Ísrael en fluttist til Bretlands á unglingsárunum. Rætt var við Dorrit í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag, af því tilefni að í gæ...
Máttu tæma lónið - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 1
Máttu tæma lónið - Vísir
Málið á rætur að rekja til haustsins 2020 þegar Orkuveita Reykjavíkur tók ákvörðun um að Árbæjarlón yrði tæmt til frambúðar. Með því var ákveðið að El...
Fram­hald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 2
Fram­hald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum - Vísir
Á morgun, 9. október, er fjörutíu ára afmælisdagur sjónvarps á Sýn sem þar til í fyrra hét Stöð 2. Í tilefni dagsins verður sérstakur afmælisþáttur sý...
Fasteignadrama á Ólafsfirði: Kaupum á einbýlishúsi rift vegna þakfúa
📅 08.10.2026 👁️ 2
Fasteignadrama á Ólafsfirði: Kaupum á einbýlishúsi rift vegna þakfúa
Landsréttur hefur staðfest riftun héraðsdóms á kaupum tveggja kvenna á einbýlishúsi á Ólafsfirði sem þær keyptu af karlmanni fyrir 33 milljónir króna ...
Burnham calls on Polanski to reverse Green Party's Zionism motion
📅 08.10.2026 👁️ 2
Burnham calls on Polanski to reverse Green Party's Zionism motion
The prime minister has intervened in the row over the motion passed by members at Green Party conference.
„Það er þá bara enn einn skammarbletturinn á framferði þessa fólks“
📅 08.10.2026 👁️ 2
„Það er þá bara enn einn skammarbletturinn á framferði þessa fólks“
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segist telja að leikrit hafi verið sett á svið í samningaviðræðum SA og VR. Hún segist íhuga alvarlega stöðu...
Hvað veistu um... Nóbels­verð­launin? - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Hvað veistu um... Nóbels­verð­launin? - Vísir
Árið 1969 bættust síðan við verðlaun sænska seðlabankans í hagfræði í minningu Alfreds Nobel. Nóbelsverðlaunin eru veitt ár hvert og verðlaunahafar fá...
Pawel segir Bókun 35 ekki ástríðumál Evrópusinna – Álíka spennandi og að taka úr uppþvottavélinni
📅 08.10.2026 👁️ 3
Pawel segir Bókun 35 ekki ástríðumál Evrópusinna – Álíka spennandi og að taka úr uppþvottavélinni
Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, segir það ekkert ástríðumál fyrir Evrópusinna að samþykkja frumvarp um Bókun 35. Þetta sé einfaldlega partur af...
„Eins og þegar liðið manns vinnur heimsmeistaramót í fótbolta“
📅 08.10.2026 👁️ 4
„Eins og þegar liðið manns vinnur heimsmeistaramót í fótbolta“
Það er vinsæll samkvæmisleikur áhugafólks um bókmenntir að giska á hvaða höfundur hreppir Nóbelsverðlaunin ár hvert. Fréttastofa heimsótti Einar Björn...
Mikilvægt að festu hafi verið náð fyrir næsta ár
📅 08.10.2026 👁️ 4
Mikilvægt að festu hafi verið náð fyrir næsta ár
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands segir það mikið gleðiefni að ríkisstjórnin, Alþýðusamband Íslands, Samtök atvinnulífsins og Samband ísl...
„Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
„Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ - Vísir
„Fréttir af knattspyrnuleik nemenda skólanna okkar sem fram fór í gærkvöldi eru okkur vægast sagt mikil vonbrigði,“ skrifar Sólveig Guðrún Hannesdótti...
Mikil og góð kornuppskera á Suðurlandi
📅 08.10.2026 👁️ 4
Mikil og góð kornuppskera á Suðurlandi
Það er nóg að gera hjá kornbændum þessa dagana, eins og á bænum Hvammi í Ölfusi, en þar er korn ræktað á um 24 hekturum og er nánast búið að slá og þr...
„Ég fagna því að þessu leik­riti sé lokið“ - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
„Ég fagna því að þessu leik­riti sé lokið“ - Vísir
„Ég vil tryggja að launafólk haldi ekki að þetta leikrit hafi skilað einhverjum árangri umfram það sem Breiðfylkingin hafði þegar náð fram,“ skrifar V...
Harry says he 'slipped into depression' during royal exit
📅 08.10.2026 👁️ 4
Harry says he 'slipped into depression' during royal exit
The Duke of Sussex says he had an "adrenaline crash" while visiting Vancouver Island to "get some space".
Harry says he 'slipped into depression' after leaving UK for Canada
📅 08.10.2026 👁️ 2
Harry says he 'slipped into depression' after leaving UK for Canada
The Duke of Sussex says he had an "adrenaline crash" while visiting Vancouver Island to "get some space".
Aflýsa eða fresta viðburðum VÍ-MR viku vegna skrílsláta á kappleik
📅 08.10.2026 👁️ 4
Aflýsa eða fresta viðburðum VÍ-MR viku vegna skrílsláta á kappleik
Ákveðið hefur verið að aflýsa eða fresta viðburðum í tilefni árlegrar MR-VÍ viku vegna skrílsláta sem upp komu á fótboltaleik skólanna tveggja í gær. ...
Tveir Lettar hand­teknir á breskri her­stöð í nótt - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Tveir Lettar hand­teknir á breskri her­stöð í nótt - Vísir
Öryggisverðir við herstöð breska flughersins við Molesworth fundu yfirgefinn bíl nærri herstöðinni um klukkan tíu í gærkvöldi, að staðartíma. Í kjölfa...
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND)
📅 08.10.2026 👁️ 4
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND)
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND) Fréttin8. október 2026ErlentLeave a Comment Fundur í borgarstjórn í Iowa hefur v...
Ísafjarðarbær leiðir hönnun og byggingu nýs verknámshúss í stað ríkisins
📅 08.10.2026 👁️ 4
Ísafjarðarbær leiðir hönnun og byggingu nýs verknámshúss í stað ríkisins
Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og mennta- og barnamálaráðherra undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um stækkun verknámshúss Menntaskólans á Ísafirði. Stækk...
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu
📅 08.10.2026 👁️ 4
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu Formað­ur Starfs­greina­sam­bands­ins seg­ir VR og Fag­fé­lög­in ekki hafa náð fr...
Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar: Leigubremsa er almannahagsmunamál
📅 08.10.2026 👁️ 4
Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar: Leigubremsa er almannahagsmunamál
Fyrirhugað frumvarp um breytingar á húsaleigulögum sem nú er rætt á Alþingi er ekki bara leigjendum þessa lands til hagsbóta, heldur almenningi sem he...
Dómur Landsréttar yfir Margréti Löf – Gátu ekki tekið afstöðu til kröfunnar um að hún yrði svipt arfi
📅 08.10.2026 👁️ 4
Dómur Landsréttar yfir Margréti Löf – Gátu ekki tekið afstöðu til kröfunnar um að hún yrði svipt arfi
Formsatriði varð til þess að Landsréttur vísaði frá kröfu hálfbróður Margrétar Löf um að hún yrði svipt erfðarétti yfir föður sínum. Landsréttur staðf...
Einar rifjar upp eftirminnileg kynni sín af Míkhaíl Gorbatsjov - Þetta kom honum mest á óvart
📅 08.10.2026 👁️ 4
Einar rifjar upp eftirminnileg kynni sín af Míkhaíl Gorbatsjov - Þetta kom honum mest á óvart
Einar Bárðason, framkvæmdastjóri og viðburðahaldari með meiru, er þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi forseta So...
Deilt um leigubremsu – „Stjörnugalin djöflasýra sem stenst enga skoðun“
📅 08.10.2026 👁️ 4
Deilt um leigubremsu – „Stjörnugalin djöflasýra sem stenst enga skoðun“
Þung orð hafa verið látin falla um leigubremsufrumvarp Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra. Seðlabankastjóri hefur lýst leigubr...
Þetta eru að­gerðirnar sem fara á í - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Þetta eru að­gerðirnar sem fara á í - Vísir
Krónutölugjöld sem hafa áhrif á vísitölu munu til að mynda ekki hækka um meira en 2,5 prósent, að kílómetragjaldi undanskildu, og á það sama við þær g...
Fyrrverandi þingmaður Framsóknar kaupir hafnfirskt bæjarblað
📅 08.10.2026 👁️ 4
Fyrrverandi þingmaður Framsóknar kaupir hafnfirskt bæjarblað
Fyrrverandi þingmaður Framsóknar kaupir hafnfirskt bæjarblað Ág­úst Bjarni Garð­ars­son hef­ur keypt bæj­ar­blað­ið Fjarð­ar­frétt­ir í gegn­um ráð­gj...
Þrettán aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að bjarga kjarasamningum
📅 08.10.2026 👁️ 4
Þrettán aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að bjarga kjarasamningum
Þrettán aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að bjarga kjarasamningum Skuld­sett heim­ili fá sam­tals 1,3 millj­arða króna í ein­skiptis­vaxta­bæt­ur verði...
Sextán ára dómur yfir Margréti Löf staðfestur
📅 08.10.2026 👁️ 4
Sextán ára dómur yfir Margréti Löf staðfestur
Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms um 16 ára fangelsi yfir Margréti Höllu Hansdóttur Löf, fyrir að hafa ráðið föður sínum bana á heimili þeirra...
Ók lyfjaður á gangandi veg­faranda - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Ók lyfjaður á gangandi veg­faranda - Vísir
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en málinu er ekki lýst frekar. Í sama hverfi var tilkynnt um innbrot og einnig tilkynnt um...
Why the search warrants were deemed unlawful and what happens next?
📅 08.10.2026 👁️ 4
Why the search warrants were deemed unlawful and what happens next?
Special correspondent Lucy Manning explains why the Hight Court has ruled that search warrants used to search Mr Mountbatten-Windsor's home were unlaw...
Christa Pike komin á fætur eftir misheppnaða aftöku
📅 08.10.2026 👁️ 4
Christa Pike komin á fætur eftir misheppnaða aftöku
Christa Pike, sem lifði af tvær aftökutilraunir með banvænni sprautu í Tennessee-ríki í Bandaríkjunum, er komin á fætur og farin að ganga um sjúkrasto...
Allt brjálað í fjölbýlishúsi í miðborginni eftir að leyft var að veitingastaður yrði opnaður
📅 08.10.2026 👁️ 4
Allt brjálað í fjölbýlishúsi í miðborginni eftir að leyft var að veitingastaður yrði opnaður
Eigendur fjögurra íbúða í fjölbýlishúsi við Vesturgötu í miðborg Reykjavíkur hafa lagt fram kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna...
Nauðgað í kosningabaráttu – Vaknaði og sá manninn draga út skaufann
📅 08.10.2026 👁️ 4
Nauðgað í kosningabaráttu – Vaknaði og sá manninn draga út skaufann
Frambjóðandi Demókrataflokksins í Arizóna fylki greinir frá því að henni hafi verið nauðgað í kosningabaráttu. Ókunnur maður rotaði hana og byrjaði sí...
Myndband sýnir ungmenni skemma bíl í Stórholti
📅 08.10.2026 👁️ 4
Myndband sýnir ungmenni skemma bíl í Stórholti
Fjölmiðlar hafa í dag greint frá skemmdaverkum á bílum í Vesturbæ Reykjavíkur en hakakross var rispaður í hurð eins bílsins. Þrír bílar voru rispaðir ...
Bein út­sending: For­sætis­ráð­herra boðar til blaða­manna­fundar - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Bein út­sending: For­sætis­ráð­herra boðar til blaða­manna­fundar - Vísir
Samkomulag náðist á milli VR, Fagfélaganna og LÍV annars vegar og Samtaka atvinnulífsins hins vegar um að kjarasamningar héldu rétt fyrir klukkan fjög...
Dag­skrá af­lýst í dag og ó­ljóst hvernig ræðukeppnin fer fram - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Dag­skrá af­lýst í dag og ó­ljóst hvernig ræðukeppnin fer fram - Vísir
„Við eigum eftir að senda tölvupóst á nemendur og forráðamenn,“ segir Sólveig Guðrún Hannesdóttir, rektor MR, í samtali við Vísi og bætir við að nemen...
Bilun í símkerfi hefur víðtæk áhrif í Noregi
📅 08.10.2026 👁️ 4
Bilun í símkerfi hefur víðtæk áhrif í Noregi
Umfangsmikil bilun er í norska farsímakerfinu. Vegna bilunarinnar getur reynst erfitt fyrir almenning að ná sambandi við neyðarnúmer viðbragðsaðila.Bi...
Samningar náðust á síðustu mínútu
📅 08.10.2026 👁️ 4
Samningar náðust á síðustu mínútu
„Það er tvennt sem kemur til til þess að ég geti gengið sátt frá borði,“ sagði Halla Gunnarsdóttir formaður VR stuttu eftir að tilkynnt var að kjarasa...
Kjarasamningar halda: Vaxtabótaauki meðal höfuðlausna
📅 08.10.2026 👁️ 4
Kjarasamningar halda: Vaxtabótaauki meðal höfuðlausna
Kjarasamningar halda: Vaxtabótaauki meðal höfuðlausna Vaxta­bóta­auki sem Kristrún Frosta­dótt­ir for­sæt­is­ráð­herra lagði til skipti sköp­um við að...
Geta Íslendingar eignað sér nýja nóbelsverðlaunahafann? - „Mér skilst að þingmenn Miðflokksins séu búin að leggja inn fyrirspurn“
📅 08.10.2026 👁️ 4
Geta Íslendingar eignað sér nýja nóbelsverðlaunahafann? - „Mér skilst að þingmenn Miðflokksins séu búin að leggja inn fyrirspurn“
Eins og kunnugt er var tilkynnt í morgun að ljóðskáldið Anne Carson hefði hlotið nóbelsverðlaunin í bókmenntum. Hún er frá Kanada en hefur undanfarin ...
Ferðamönnum frá Ísrael mismunað vegna uppruna á íslenskum veitingastað – Neitað um þjónustu og vísað á dyr
📅 08.10.2026 👁️ 4
Ferðamönnum frá Ísrael mismunað vegna uppruna á íslenskum veitingastað – Neitað um þjónustu og vísað á dyr
Ónefndur veitingastaður á Íslandi gerðist sekur um mismunum á grundvelli þjóðernisuppruna síðsta sumar þegar pari frá Ísrael var neitað um þjónustu. Þ...
Margrét Löf heldur arfinum eftir föðurinn sem hún myrti
📅 08.10.2026 👁️ 4
Margrét Löf heldur arfinum eftir föðurinn sem hún myrti
Landsréttur staðfesti í dag 16 ára fangelsisvist Margrétar Höllu Hansdóttur Löf sem banaði föður sínum á heimili fjölskyldunnar við Súlunes á Arnarnes...
Sorgleg staðreynd um systurnar þrjár sem drukknuðu við strönd Brighton
📅 08.10.2026 👁️ 4
Sorgleg staðreynd um systurnar þrjár sem drukknuðu við strönd Brighton
Þrjár systur sem fundust látnar í sjónum við Brighton á Englandi í maí sviptu sig lífi, samkvæmt niðurstöðu réttarrannsóknar sem lauk í dag, 8. októbe...
Spjallið með Frosta Logasyni | Kolbeinn Stefánsson: Þegar pólitík ræður vísindunum – og fjölmiðlar gleypa allt
Alaska og Flóni hætt saman - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Alaska og Flóni hætt saman - Vísir
Þetta herma heimildir fréttastofu en þau eru þó enn góðir vinir. Samband þeirra varð opinbert í apríl á þessu ári og höfðu þau verið vinir í dágóða st...
Staðfesta fyrsta dauðsfallið vegna ebólu í Kenía
📅 08.10.2026 👁️ 4
Staðfesta fyrsta dauðsfallið vegna ebólu í Kenía
Yfirvöld í Kenía hafa staðfest fyrsta dauðsfallið vegna ebólu-smits. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin staðfestir að tilfellið sé það fyrsta sem greinist af...