Yfirskattanefnd hefur hafnað kröfu foreldris fatlaðs barns sem fór fram á að verða veittur frekari frádráttur frá tekjuskatti en ríkisskattstjóri hafði þegar samþykkt. Hafði foreldrið ráðist í umfangsmiklar framkvæmdir á heimili sínu og barnsins. Foreldrið sagði þær tilkomnar þar sem laga hefði þurft heimilið að þörfum barnsins og fór fram á að vera veittur frádráttur frá tekjuskatti vegna framkvæmdanna. Alls kostuðu umræddar framkvæmdir yfir 30 milljónir króna og því um nokkuð háar upphæðir að ræða.
Foreldri fatlaðs barns neitað um frekari skattaafslátt - Eyddi háum fjárhæðum í að laga heimilið að þörfum barnsins