Fiskistofa hefur beðið starfsfólk sitt að vinna heima eftir að mygla greindist á nýjan leik í húsnæði þeirra á Borgum, við Norðurslóð á Akureyri. Fiskistofa var tiltölulega nýlega flutt aftur inn í húsnæðið á Borgum, frá því síðast greindist mygla. Reitir, eigendur húsnæðisins, stóðu að miklum framkvæmdum og viðgerðum til þess að útrýma myglunni.
Átta sýni voru tekin í apríl og tvö þeirra greindust með myglugró yfir mörkum. Strax í kjölfarið bað Elín Björg Ragnarsdóttir, Fiskistofustjóri, starfsfólk sitt um að vinna heima.
Í samtali við fréttastofu sagði Elín að hún hefði ákveðið að senda fólkið í heimavinnu á meðan verið væri að leita skýringa og svara á þessari greiningu. Möguleg skýring væri krossmengun á sýnum en miklar framkvæmdir hafa verið í húsnæðinu undanfarin tvö ár, sem gæti orsakað krossmengunina.
Vilja nýtt húsnæði undir stofnunina
Fiskistofa hefur óskað eftir því við Framkvæmdasýsluna - Ríkiseignir og ráðuneyti að finna annað húsnæði fyrir stofnunina, hvort sem það er til bráðabirgða eða til framtíðar.
Mygla greindist á Borgum á Akureyri fyrst vorið 2024. Húsnæðið, sem er í eigu Reita, hýsti fjölmargar stofnanir á vegum ríkisins. Myglan hafði töluverð áhrif á starfsemi stofnananna og henni fylgdi mikið rask.