Þungaflutningar á efniviði í vindmyllur fyrsta vindorkuvers landsins, Vaðölduvers, hefjast í nótt.
Flutningarnir verða að jafnaði sex nætur vikunnar næstu 7-10 vikur. Efniviðurinn fer rúmlega 130 kílómetra leið, frá Þorlákshöfn og að Vaðölduveri, þar sem stendur til að reisa 28 vindmyllur á næstu árum.
Landsvirkjun stefnir á að helmingur vindmyllanna verði gangsettur haustið 2026 og að í árslok verði vindorkuverið að fullu tilbúið og komið í rekstur.
Flutningarnir eru einhverjir þeir mestu þungaflutningar sem ráðist hefur verið í á Íslandi. Hver bílalest getur orðið allt að 250 metra löng, en farnar verða um 350-400 ferðir milli Þorlákshafnar og Vaðölduvers, 130 kílómetra leið, á 30 km hraða.
Flutningsleiðin liggur um fimm sveitarfélög: Árborg, Ölfus, Flóahrepp, Ásahrepp og Rangárþing Ytra. Á vef Vegagerðarinnar segir að búast megi við töfum og skammtímalokunum meðan á flutningum stendur.