Flugvirkjafélag Íslands hefur ákveðið að aflýsa verkfalli sínu, en formaður félagsins, Óskar Einarsson, staðfestir þetta í samtali við Vísi. Ríkisstjórnin hafði ákveðið á fundi sínum í morgun að setja lög á verkfallið, en nú hefur verkfallinu verið aflýst og tekur aflýsingin strax gildi. Óskar segir ákvörðun ríkisstjórnarinnar fyrirsjáanlega en á sama tíma ákveðin vonbrigði.
Flugvirkjar aflýsa verkfallinu