Þetta staðfesti Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, í samtali við fréttastofu nú rétt í þessu en Rúv greindi fyrst frá.
Segir Jón Þór að verkfallið muni hafa áhrif á leiguflug fyrir þriðja aðila þar sem Icelandair selur ekki sæti vélarinnar eða rými í fraktflugi sjálft. Jafnframt að félagið reyni eins og það geti að brjóta ekki á íslensku efnahagslífi eða farþegum og áhrifa muni ekki gæta hér á landi.
„Þetta hefur engin áhrif á íslenska flugfarþega og ekkert á íslensk hagkerfi raunverulega eða leiðarkerfi Icelandair. Þetta er eingöngu fyrir þriðja aðila úti í heimi og það er kannski ástæðan fyrir því að við gerum þetta svona. Það er alltaf leiðinlegt að þurfa að standa í þessu en við erum að reyna að lágmarka tjónið eins og mögulegt er,“ sagði Jón Þór í samtali við fréttastofu.
Kjaradeilur Icelandair og FÍA hafa verið á borði ríkissáttasemjara frá því í vor og kjarasamningar flugmanna verið lausir frá haustinu 2025. Jón Þór segir viðræður ekki ganga nógu vel en að vonandi muni ná saman.
„Stundum þegar kemur þrýstingur getur kviknað ljós,“ sagði Jón Þór.
„Það hefur ekki verið formlegt núna í svolítinn tíma en það er samtal í gangi. Það mætti ganga betur en það felur kannski í sér að við erum ekki að ná saman þegar menn fara í svona aðgerð eins og við erum að fara í núna.“
Samkvæmt tilkynningu FÍA á dögunum beinast fyrirhugaðar aðgerðir fyrst og fremst aðaðgerðum Icelandair á Möltu. Jón Þór segist vonast til að FÍA nái að setja þrýsting á Icelandair.
„Markmiðið er kjarasamningur, markmiðið er ekki átök.“