Aðeins vika er síðan bandaríska flugmálastjórnin (FAA) tilkynnti að hún hygðist hætta notkun disklinga, eða floppy-diska. Þeir hafa hingað til verið notaðir til að halda utan um veðurupplýsingar og aðrar mikilvægar flugumferðarupplýsingar.
Samkvæmt tilkynningunni, sem FAA gaf út 6. nóvember, stendur til að taka nýtt kerfi í notkun í stað disklinganna á meira en 400 stöðum um land allt fyrir lok ársins 2028.
Markwayne Mullin heimavarnarráðherra Bandaríkjanna sagði fyrr í nótt að allt útlit væri fyrir að flugumferðarkerfið hefði hrunið vegna þess að búið var að gera á því uppfærslur sem kerfið var of úrelt til að ráða við. Ekki hefur fengist staðfest hvort floppy-diskar tengist vandamálinu beint.
Rúmar ekki eina iPhone-ljósmynd
Vafalaust eru einhverjir lesendur of ungir til að muna eftir disklingum, sem einnig voru kallaðir diskettur. Það voru gagnadiskar sem varðveittir voru í plasthulstri. Hulstrinu var stungið inn í drif á tölvu sem las gögnin af disklingnum.
Fyrstu disklingarnir komu á markaðinn árið 1971 og gegndu fyrst og fremst því hlutverki að geyma gögn sem ekki komust fyrir á tölvum þess tíma eða sem nauðsynlegt var að eiga afrit af. Á einum disklingi rúmast yfirleitt um 1,44 MB af gögnum. Hann hefði því ekki pláss fyrir eina ljósmynd sem tekin væri á iPhone-síma í dag.