Jarðskjálfti af stærðinni 7,8 reið yfir undan suðurströnd Filippseyja skömmu fyrir miðnætti að íslenskum tíma.
Flóðbylgjustofnun Kyrrahafsins hefur varað við því að flóðbylgjur gætu skollið á ströndum Filippseyja, Indónesíu, Palaú, Tavaíns og Papúa Nýju-Gíneu á næstu þremur klukkustundum.
Þá hefur japanska veðurstofan varað við flóðbylgjum sem gætu náð eins metra hæð á Kyrrahafsströnd landsins.