Varnamálaráðuneyti Bandaríkjanna birti fjórða bunkann af skjölum um dularfull flygildi á vefsíðu sinni í fyrradag.
Nýbirtu skjölin, sem eru 40 talsins, eru frá árunum 1948 til 2025 og innihalda skýrslur, myndbönd, hljóðupptökur og myndir sem tengjast óútskýrðum, óþekktum fyrirbærum í lofti. Í skjölunum má einnig finna skýrslur Pentagon, NASA, CIA og FBI.
Flugmaður sem lést við eftirför á flygildi
Meðal skjalanna er greining á dularfullum flygildum frá árinu 1949. Í greiningunni er vísað til þess að árið áður hafi flugmaður þjóðvarðarliðsins látið lífið í eftirför hersins á dularfullu flygildi.
Í greiningunni kemur fram að rannsakendur hafi talið líklegast að flugmaðurinn hafi orðið fyrir súrefnisskorti og hrapað. Í síðustu talstöðvarsendingu hans á hann að hafa lýst fyrirbærinu sem stórum málmhlut.
„Þetta virðist vera málmhlutur … af gríðarlegri stærð … beint fram undan og örlítið fyrir ofan … ég er að reyna að komast nær til að sjá betur,“ er haft eftir flugmanninum í skjalinu.
Stjórnvöld geta ekki útskýrt fyrirbærin
Skjölin sem hafa verið birt tengjast óleystum málum þar sem stjórnvöld í Bandaríkjunum geta ekki komist að niðurstöðu um eðli fyrirbæra sem sést hafa. Á vefsíðu varnarmálaráðuneytisins segir að ráðuneytið muni áfram gefa úr skýrslur þegar mál um dularfull flygildi eru leyst.
„Þessi ríkisstjórn mun leita sannleikans og deila niðurstöðum okkar með bandarísku þjóðinni,“ segir á síðunni.
Hér að ofan er myndskeið af dularfullu sexstirndu flygildi sem bandaríski herinn náði með innrauðum nema í Gulahafi milli Kína og Kóreuskaga á síðasta ári.
Fyrsti hluti skjalanna var gefinn út 8. maí að ósk Donalds Trumps Bandaríkjaforseta. Í febrúar skrifaði hann á samfélagsmiðli sínum Truth social:
„Vegna þess gríðarlega áhuga sem sýndur hefur verið mun ég beina því til varnarmálaráðherra og annarra viðeigandi ráðuneyta og stofnana að hefja ferlið að auðkenna og birta skjöl stjórnvalda sem tengjast geimverum og lífi utan jarðar, óþekktum fyrirbærum í lofti (UAP) og dularfullum flygindum (UFO) og öllum öðrum upplýsingum sem tengjast þessum afar flóknu en jafnframt ákaflega áhugaverðu og mikilvægu málum. GUÐ BLESSI AMERÍKU!“
Ljósmynd frá árinu 1969 af yfirborði tunglsins frá lendingarstað Apollo 12. Á myndinni eru fimm svæði fyrir ofan sjóndeildarhringinn, merkt „Svæði 1“ til „Svæði 5“, þar sem óþekkt fyrirbæri eru sýnileg.
Tugir milljóna skjala til yfirferðar
Varnarmálaráðuneytið vinnur að því að finna, yfirfara, auðkenna og birta opinberlega gögn og söguleg skjöl sem tengjast óþekktum fyrirbærum í lofti.
Verkefnið er fordæmalaust og krefst samhæfingar milli fjölda stofnana og yfirferðar á tugum milljóna skjala, að því er segir á vefsíðu varnarmálaráðuneytisins. Mörg skjalanna eru einungis til á pappír og þau spanna marga áratugi.
„Í ljósi umfangs þessa verkefnis mun varnarmálaráðuneytið birta nýtt efni jafnóðum og það finnst og leynd er aflétt af því, en nýir bunkar verða birtir á nokkurra vikna fresti,“ segir á síðunni.