Alls sóttu 16 um stöðu sveitastjóra sveitarfélagsins Skagastrandar en umsóknarfrestur rann út 30. júní. Tveir umsækjendur drógu umsókn sína til baka að því er fram kemur á vef sveitarfélagsins.
Alexandra Jóhannesdóttir hefur undanfarin átta ár gengt stöðu sveitarstjóra á Skagaströnd en hún var á dögunum valin til að taka við bæjarstjóra Suðurnesjabæjar.
Að neðan má sjá lista yfir umsækjendur:
- Aðalheiður Sigursveinsdóttir, ráðgjafi
- Arnar Loftsson, fasteignasali
- Birgir Andri Óskarsson, afgreiðslumaður
- Birta Rán Björgvinsdóttir, kvikmyndatökukona
- Einar Kristján Jónsson, fyrrv. sveitarstjóri
- Hildigunnur Rut Jónsdóttir, mannauðsfulltrúi
- Jón Tryggvi Sveinsson, verkefnastjóri
- Magnea Marinósdóttir, framkvæmdastjóri
- Maríanna Hugrún Helgadóttir, fyrrv. framkvæmdastjóri
- Ólafur Þór Ólafsson, fyrrv. sveitarstjóri
- Sigríður Kristín Jónasdóttir, verkefnastjóri
- Sigurður Sigurðsson, rekstrarstjóri
- Steinar Þór Magnússon, þjónn
- Þorgeir Pálsson, fyrrv. sveitarstjóri