Bandaríski fjölmiðillinn CNN greinir frá og tekur fram að blaðamaður þeirra hafi orðið fyrir árás landnemanna. Blaðamennirnir voru staddir á þeim hluta Vesturbakkans sem ísraelskir landnemar hafa tekið yfir.
Þeir höfðu lagt leið sína þangað þar sem að ár er liðið frá því að Saif Musallet, palestínskur-bandarískur maður, var barinn til dauða af landnemum. Nokkrum mínútum eftir að blaðamennirnir mættu á staðinn þar sem Musallet dó komu nokkrir landnemar og þjörmuðu að þeim auk þess sem þeir komu í veg fyrir að blaðamennirnir gætu yfirgefið staðinn.
Fjórmenningarnir voru vopnaðir hnífum úr viði, stálrörum og steinum. Hoppuðu þeir upp á einn af bílum blaðamannanna og brutu þar rúðu. Skömmu síðar komu lögregla og ísraelskir hermenn á vettvang og tóku landnemana fjóra í hald.
„Ísraelska lögreglan og herinn líta hvers kyns birtingarmyndir ofbeldis eða eignaspjalla mjög alvarlegum augum, sérstaklega þegar það varðar fjölmiðlafólk við störf sín,“ segir í yfirlýsingu frá lögreglunni.