Fjórir voru drepnir þegar Ísraelsher gerði árás á fólksbíl í suðurhluta Líbanons í dag. Samkvæmt ríkisfjölmiðlum landsins hefur Ísrael haldið reglulegum árásum áfram á suðurhluta landsins þrátt fyrir að vopnahlé hafi tekið gildi milli ríkjanna í júní.
Skólastjóri, móðir hennar, erlend kona og sýrlenskur karlmaður fórust þegar ísraelskum dróna var skotið á bíl þeirra, að því er fram kemur í frétt líbönsku fréttastofunnar NNA. Þau höfðu farið á bílnum til þess að skoða heimili fjölskyldu sinnar í þorpinu Nabatieh al-Fawqua eftir að hafa þurfti að yfirgefa það vegna árása ísraelska hersins.
Bandaríkin og Íran undirrituðu samkomulag í júní sem miðaði að því að binda enda á átökin sem geisað hafa í Mið-Austurlöndum undanfarna mánuði. Með samkomulaginu var einnig efnt til vopnahlés á milli Ísraels og Líbanon.
Þrátt fyrir yfirstandandi vopnahlé hafa bæði ríki sakað hvort annað um að brjóta gegn samkomulaginu. Þá hafa Hezbollah-samtökin, sem drógu Líbanon inn í stríðið í byrjun mars með eldflaugaárásum á Ísrael, hafnað samningnum.
Líbönsk stjórnvöld segja 4.300 Líbana hafa fallið í árásum Ísraela frá því í mars og að yfir milljón manns hafi þurft að flýja heimili sín. Yfir 640.000 hafa hins vegar snúið aftur til síns heima frá því samkomulag um vopnahlé tók gildi 21. júní.