Fjölskylda Henry Nowak lýsir nú í fyrsta sinn nóttinni þegar henni var tilkynnt um morðið á honum og áfallinu sem fylgdi því að sjá upptöku úr búkmyndavél lögreglunnar. Í viðtali við ITV segir fjölskyldan að hún hafi þurft að horfast í augu við tvö áföll: fyrst dauða Henrys og síðan að sjá hvernig lögreglumenn komu fram við hann á vettvangi.
„Á síðasta ári hefur heimurinn okkar hrunið tvisvar. Í fyrra skiptið var það nóttina þegar okkur var sagt að Henry væri dáinn. Í seinna skiptið var það þegar við horfðum á myndbandið,“ segir Katie Nowak, stjúpmóðir hans, í viðtali við Daily Mail.
Lögreglubíllinn stóð í innkeyrslunni
Katie segist hafa stokkið fram úr rúminu og séð lögreglubíl í innkeyrslunni. Einn lögreglumannanna hélt á húfunni sinni og hún hafi strax áttað sig á því að eitthvað hræðilegt hefði gerst. Þegar Mark Nowak, faðir Henrys, fékk fréttirnar féll hann á kné og rak upp örvæntingaróp sem Katie segist aldrei munu gleyma.
Hjá Lucy Ross, móður Henrys, bankaði lögreglan upp á um klukkan eitt um nótt. Olivia Nowak, eldri systir hans, kallaði á móður sína og sagði lögreglumenn standa við dyrnar. Þeir spurðu hvort hún ætti son sem héti Henry, sögðu að til átaka hefði komið og að hann væri látinn.
Olivia geymir boli bróður síns á rúminu hans og segir þá enn lykta af honum. Lucy treystir sér ekki inn í herbergið. Yfirhafnir hanga yfir hurðinni svo hún þurfi ekki að horfa á hana.
Segja frásögn lögreglunnar hafa breyst í hvert sinn
Í umfjöllun Guardian 2. nóvember um sama viðtal segir fjölskyldan að lögreglan hafi ranglega sagt henni að Henry hefði verið árásaraðilinn og að lögreglumenn hefðu strax veitt honum fyrstu hjálp. Mark segir frásögnina hafa breyst í hvert skipti sem þau áttu í samskiptum við lögregluna.
Fyrst hafi fjölskyldunni verið sagt að lögreglumenn hefðu veitt fyrstu hjálp við strax komuna. Síðan að allir hefðu verið stöðvaðir á vettvangi. Síðar hafi komið í ljós að aðeins Henry hefði verið stöðvaður, að hann hefði verið handjárnaður og loks að hann hefði verið handtekinn.
„Okkur fannst verið að blekkja okkur. Okkur fannst ekki vera verið að segja okkur sannleikann,“ segir Mark.
Katie telur að allir sem komu að málinu hafi ítrekað brugðist fjölskyldunni.
„Ég óttast að hugsanlega hafi verið ráðskast með okkur á okkar allra verstu og erfiðustu tímum. Og ég óttast að sumar ákvarðanir hafi verið teknar til að vernda lögregluna og orðspor hennar fremur en að hjálpa okkur,“ segir hún.
Samkvæmt fjölskyldunni sagði óháð eftirlitsstofnun með lögreglunni henni í apríl að enginn lögreglumaður yrði rannsakaður þar sem ekkert þætti athugavert við framgöngu þeirra. Innan við tveimur mánuðum síðar þurfti lögreglan í Hampshire að biðjast afsökunar.
Handtekinn meðan hann lá deyjandi
Henry var 18 ára og á fyrsta ári í bókhaldi og fjármálum við Southampton-háskóla þegar Vickrum Digwa stakk hann fimm sinnum á Belmont Road um klukkan 23:30 að kvöldi 3. desember 2025. Hann var á heimleið eftir kvöld með félögum úr fótboltaliðinu sínu og var úrskurðaður látinn 4. desember. Digwa var dæmdur í lífstíðarfangelsi 1. júní og þarf að afplána minnst 21 ár.
Á upptökunni segir Henry ítrekað að hann hafi verið stunginn en lögreglumaður svarar því til að hann telji svo ekki vera. Henry var handjárnaður og handtekinn fyrir rasisma meðan hann lá deyjandi. Þegar lögreglumenn áttuðu sig á alvarleika áverkanna tóku þeir handjárnin af honum og hófu endurlífgun.
Tveir lögreglumenn eru nú til rannsóknar vegna mögulegs alvarlegs agabrots. Einnig er skoðað hvort kynþáttur, trú eða fordómar hafi haft áhrif á ákvarðanir lögreglunnar. Niðurstöðu er að vænta snemma á næsta ári.
Alexis Boon, yfirlögregluþjónn í Hampshire og Isle of Wight, hefur beðið fjölskylduna afsökunar: „Mér þykir óendanlega leitt að við brugðumst honum á síðustu stundum hans, þegar hann þurfti mest á okkur að halda.“
Áfrýjun og heimildarmynd sama dag
Fimmtudaginn 5. nóvember tekur áfrýjunardómstóll fyrir beiðni Digwa um styttingu refsingarinnar, en hann fékk í september leyfi til að fá lengd hennar endurskoðaða.
Shabana Mahmood innanríkisráðherra tilkynnti 26. október óháða úttekt undir stjórn Alex Chalk, fyrrverandi dómsmálaráðherra, á því hvort tækifæri hefðu glatast til að koma í veg fyrir morðið og hvernig farið hefði verið með fjölskylduna, en fyrsti hluti hennar á að liggja fyrir í mars 2027.
Sama kvöld og áfrýjunarbeiðnin er tekin fyrir sýnir ITV klukkutíma heimildarmyndina „Dear Henry: Our Fight for Justice“. Mark, Katie, Lucy og Olivia ræddu við Paul Brand, ritstjóra innlendra frétta hjá ITV News, í þrjá mánuði fyrir myndina. Hún verður sýnd klukkan 21 að íslenskum tíma á ITV, ITVX og YouTube-rás ITV News og fjallar um missi þeirra og baráttuna til þess að fá réttlætinu fullnægt fyrir Henry.