Fjölskylda Bjarna enn tengd Hval þegar hann gaf veiðileyfi
Föðursystir Bjarna Benediktssonar var ein af tíu stærstu hluthöfum Hvals hf. þegar hann gaf félaginu umdeilt leyfi til hvalveiða. Hvalur keypti eigin bréf fyrir hálfan milljarð á meðan hlutur dánarbús föður Bjarna dróst saman. „Það eru engir nákomnir ættingjar mínir sem hafa hagsmuni hér,“ sagði Bjarni, sem áður taldi sig vanhæfan í málum félagsins vegna vensla.
Bjarni Benediktsson, fyrrverandi ráðherra og nú framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, taldi sig vanhæfan haustið 2024 til að afgreiða umsókn Hvals hf. um veiðar á langreyðum þar sem venslamaður hans ætti sérstakra og verulegra hagsmuna að gæta af úrlausn málsins.
Tveimur vikum seinna, nokkrum dögum eftir að Sjálfstæðisflokkurinn fékk sögulega lágt fylgi í alþingiskosningum og var á leið í stjórnarandstöðu, sagði Bjarni hins vegar ástæður fyrir vanhæfinu ekki lengur til staðar og veitti Hval fimm ára leyfi til veiða, sem endurnýjast sjálfkrafa á hverju ári. Hann sagði náskylda ættingja ekki eiga í félaginu.
Nýr ársreikningur Hvals hf. sýnir hins vegar að Guðrún Sveinsdóttir, föðursystir Bjarna, er á meðal stærstu hluthafa Hvals með 1,78% hlut og óbreyttan fjölda bréf frá fyrra ári. Ársreikningurinn er fyrir tímabilið 1. október 2024 til 30. september 2025 en leyfið veitti Bjarni 5. desember 2024.
Þá sýnir ársreikningurinn að eignarhlutur dánarbús föður Bjarna, Benedikts Sveinssonar, sem lést haustið …