Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur á Fáskrúðsfirði í boði Loðnuvinnslunnar í dag. Farið var í siglingu á skipum félagsins, Hoffelli og Ljósafelli.
Ljósafell er nýlega komið til Loðnuvinnslunnar og var það til sýnis almenningi.
Þá var boðið upp á léttar veitingar í boði Loðnuvinnslunnar.
Að sögn fréttaritara mbl.is á Fáskrúðsfirði, Alberts Kemp, var fjölmenni í siglingu skipanna og margir aðkomumenn.
