Fjármálaeftirliti Seðlabankans hafa borist margar ábendingar um vefsíðuna LanHeim. Á vefsíðunni gefur LanHeimur sig út fyrir að vera fjármálafyrirtæki undir eftirliti Fjármálaeftirlitsins.
Í tilkynningu kemur fram að Fjármálaeftirlitið vilji taka fram að starfsemin sem auglýst er á umtalaðri síðu sé ekki undir neinu eftirliti þess.
Vill Fjármálaeftirlitið einnig leiðrétta að íslenskt einkahlutafélag sem vísað er til á vefsíðunni virðist ekki eiga neina tengingu við starfsemi vefsíðunnar.
Af þessu tilefni vill Fjármálaeftirlitið einnig vekja athygli á viðvörun sinni um stafræn fjársvik og fleira sem birt var 5. febrúar.