Fjar­fundaþjónusta Hugar­afls er lífs­björg fyrir fólk - Vísir

Fjar­fundaþjónusta Hugar­afls er lífs­björg fyrir fólk - Vísir

Fjar­fundaþjónusta Hugar­afls er lífs­björg fyrir fólk - Vísir

Hugarafl eru frjáls og óháð félagasamtök í grasrót geðheilbrigðismála sem vinna á jafningjagrunni og með mannlega nálgun. Þegar heimsfaraldurinn skall á blasti við að stór hópur fólks myndi einangrast og Hugarafl brást hratt við. Fjarfundum var komið á og á mettíma var full dagskrá komin á netið. Jafnframt var jafningjastuðningi sinnt í gegnum síma komið á fyrir þau sem treystu sér ekki í fjarfundi.

Sannaði gildi sitt og er komin til að vera

Skjót viðbrögð urðu til þess að starfsemi Hugarafls hélt áfram á meðan mörg önnur úrræði lokuðu í faraldrinum. Þegar takmörkunum var aflétt kom í ljós að fjarfundirnir voru ekki bráðabirgðalausn heldur höfðu sannað sig sem skilvirkt tól fyrir fólk sem vegna búsetu hafði ekki kost á aðstoð.

Í dag er þjónustan því bæði staðbundin og rafræn. Notast er við Teams og margir hópanna eru blandaðir þ.e. bæði á Teams og í húsi. Þjónustan nær nú til fólks um allt land og sinnir Hugarafl nú um 500 manns á ári í virkri þjónustu. Fjöldi annarra erinda berst einnig til Hugarafls svo sem ráðgjöf og stuðningur við að rata innan kerfisins eða stuðningur vegna skorts á þjónustu annars staðar svo dæmi séu tekin.

Sveigjanleikinn er okkar styrkur og gerir okkur kleift að bregðast hratt við og skapa þjónustu sem hefðbundið stofnanakerfi á stundum erfitt með að veita.

Auður Axelsdóttir, framkvæmdastjóri Hugarafls segir einstakt að grasrótarsamtök bjóði þjónustu af þessari stærðargráðu.

„Það er einstakt að grasrótar- og sjálfboðaliðasamtök sinni jafn umfangsmiklu og faglegu starfi og raun ber vitni hjá okkur. Í geðheilbrigðis- og endurhæfingarmálum hér á landi er oft unnið innan ákveðinna ramma en við í grasrótinni getum nálgast fólk á annan hátt. Sveigjanleikinn er okkar styrkur og gerir okkur kleift að bregðast hratt við og skapa þjónustu sem hefðbundið stofnanakerfi á stundum erfitt með að veita,“ segir Auður.

Notendastýrð þjónusta sem byggir á jafningjastuðningi

„Við erum með um sex stöðugildi starfsfólks en við gætum aldrei rekið svona stórt félag án öflugs hópastarfs, jafningjastuðnings og sjálfboðaliða. Um 500 manns sinna bata sínum í virkri þjónustu á ári hverju, auk fjölda annarra sem leita aðstoðar hjá Hugarafli og það er met aðsókn núna. Meðal annars af því að það er hægt að vera með í gegnum fjarfundabúnað,” segir Grétar Björnsson, fræðslu- og stuðningsfulltrúi Hugarafls.

Hann segir fólk sem notar fjarfundarbúnaðinn fá sömu þjónustu og aðrir. „Þau geta öll sótt um jafningjastuðning, verið í endurhæfingu í gegnum fjarfundi og fengið viðtöl við fagfólk. Þetta er lífsbjörg fyrir fólk sem hefði annars ekki aðgang að svona þjónustu,“ segir hann og Auður bætir við að lykilatriði sé að fólk fái að fara í gegnum endurhæfingu á eigin forsendum.

„Við erum oft að ná til fólks sem kemst ekki að annars staðar og hefur jafnvel brennt brýr að baki sér. Stór hluti þeirra sem leitar til okkar líður mjög illa þegar þau koma inn, margir glíma við sjálfsskaðahegðun eða sjálfsvígshugsanir. Við sjáum þó raunverulegan árangur þegar fólk fær tíma, traust og stuðning á sínum eigin forsendum. Sérstaklega á þetta við um unga fólkið sem hefur kannski dottið úr skóla, misst sjálfstraustið og trúna á framtíðina. Þetta er viðkvæmur en ótrúlega verðmætur hópur og það tekur tíma að byggja fólk upp aftur.

Stór hluti þeirra sem leitar til okkar líður mjög illa þegar þau koma inn, margir glíma við sjálfsskaðahegðun eða sjálfsvígshugsanir.

Endurhæfing þarf að fá að taka tíma og fólk sem gengur í gegnum geðræn sár fer líka í gegnum bakslög. Þá þarf að vera svigrúm til að vinna með þau í ferlinu í stað þess að missa fótfestuna alveg. Hjá okkur missir fólk ekki plássið sitt þó eitthvað komi upp á. Við lítum svo á að fólk þurfi að fá tækifæri til að læra á hindranirnar sem koma upp á leiðinni. Ef kerfin verða svo stór og stíf að þau hætta að taka mið af hverri manneskju erum við komin í vanda. Endurhæfing þarf að vera á forsendum þeirra sem þurfa hjálpina, annars getur það endað með meiri kostnaði fyrir samfélagið þegar fólk fær ekki þann stuðning sem það þarf,“ segir Auður.

Dagskrá sem heldur utan um bataferlið

Starf Hugarafls byggir á skipulagðri dagskrá sem gildir í sex vikur í senn. Hópar eru fjölbreyttir og taka á mismunandi þáttum bataferlisins.

Helstu hópar sem eru í boði í gegnum Teams eru:

  • Mánudagar: Skipulagðir endurhæfingarhópar (A, B, C og grunnur). Skyldumæting fyrir þau sem eru í virkri endurhæfingu hjá TR. Allir þessir hópar eru á Teams.
  • Þriðjudagar: Bati. Einn stærsti hópurinn, fjallar um bjargráð í bata og batahugmyndafræðina og lyfjamál eru rædd vikulega.
  • Miðvikudagar: Hugaraflsfundur. Lýðræðislegur vettvangur og félagsfundur þar sem allir hafa atkvæðisrétt og geta haft áhrif á starfið.
  • Fimmtudagar: Valdefling: Opið samtal um hugmyndafræði Hugarafls og félagsfundur Unghuga (fyrir 18-30 ára).

Nýliðum er sérstaklega bent á að mæta á fundina Bati, Valdefling og á Hugaraflsfund.

Virk þátttaka til endurhæfingar

Þótt fundirnir fari fram í gegnum skjái eru gerðar skýrar kröfur til þátttakenda. Litið er á fundina eins og vinnutíma, myndavélin þarf að vera í gangi og fólk virkt í umræðum. Endurhæfingin er þó stigvaxandi og þátttakendur fá tíma til að byggja upp sjálfstraust og seiglu. Verkefni eru unnin heima og kynnt fyrir hópnum, óháð því hvort fólk er á staðnum eða á netinu.

Mikilvægt fyrir fólk í dreifðum byggðum

Þörfin fyrir slíka þjónustu er víða mikil. Í sumum byggðarlögum er takmarkað framboð á sérfræðiþjónustu og biðlistar langir. Dæmi eru um að fólk hafi ekki kost á að hitta heimilislækni nema einu sinni í mánuði og hafi engan aðgang að sálfræðingi. Í því samhengi getur fjarfundaþjónusta skipt sköpum. Hún er ódýrari en margar aðrar lausnir og byggir á virkni, þátttöku og stuðningi innan samfélags.

„Hugarafl gaf mér von þegar hún var næstum farin“

Margrét Dögg býr á Norðurlandi eystra og hefur síðustu tvö ár tekið þátt í endurhæfingu hjá Hugarafli í gegnum netþjónustu félagsins.

Margrét Dögg Samstarfs Hugarafl

Hún hafði áður reynt önnur úrræði sem hentuðu henni illa og fann fyrir miklu vonleysi. Hún heyrði fyrst af þjónustunni í gegnum Facebook hóp, ótengdan Hugarafli, og var þá búsett á höfuðborgarsvæðinu. Þegar hún flutti norður bauðst henni að halda áfram þátttöku í gegnum Teams og tekur meðal annars þátt í Bata, Valdeflingu, Drekasmiðjunni og öðrum fundum á vegum félagsins. Fyrir hana hefur fjarfundaþjónustan skipt miklu máli.

„Ég man daginn sem ég hringdi í Hugarafl og fór á kynningarfund. Þá byrjaði vonleysið hægt og rólega að breytast í von. Ég nota tækin og tólin sem miðlað er í tímunum í daglegu lífi núna. Hver tími hefur gefið ný úrræði sem raunverulega er hægt að nota. Jafningastuðningurinn og mannelskan er stærsti þátturinn innan sem utan veggja Hugarafls. Þetta hefur haft þau áhrif að ég er ekki lengur að fela mig eða finnast ég ein á báti, ég þori að nota röddina mína og spegla mig í reynsluboltum Hugarafls út á við. Það gefur krafmikla von þegar hún var svolítð farin.”

Hún segir auðvelt að nota fjarfundaþjónustuna. „Það getur verið einmannalegt, enda ekkert betra en að koma í hús og geta plantað sér niður í sófann með öðrum, spjalla saman eða taka óbeinan þátt í vegferðinni með öðrum notendum Hugarafls. En að vera út á landi og fá að taka þátt í endurhæfingunni sem Hugarafl býður upp á er mikilvægt fyrir þau okkar sem annars myndu missa af mikilvægum þætti endurhæfingar yfir höfðuð, og það spillir ekki fyrir að geta sótt endurhæfinguna í gegnum fjarbúnað heima í stofu og finna að maður skiptir jafnmiklu máli innan veggja félagsins sem utan þess. Það fer mikil vinna og fjármagn í að bjóða upp á þetta fyrir félagsmenn og er sennilega einsdæmi, já ef ekki fordæmi hér á Íslandi. Ég vil koma endalausu þakklæti á framfæri til Hugarafls.”

Ég man daginn sem ég hringdi í Hugarafl og fór á kynningarfund. Þá byrjaði vonleysið hægt og rólega að breytast í von.

Hjálpar mikið að fá stuðning frá fólki sem skilur hvað maður er að upplifa

Halla Einarsdóttir býr í Vestmannaeyjum og segir fjarfundaþjónustuna skipta sköpum fyrir fólk utan höfuðborgarsvæðisins.

„Ég hef átt erfitt með að fá geðheilbrigðisþjónustu hérna. Það er enginn geðlæknir á staðnum og þó hér séu sálfræðingar kostar mikið að fara til þeirra. Ég fór áður til sálfræðings og þá var hægt að sækja um styrk hjá Vestmannaeyjabæ sem hjálpaði mikið. Ég held að það sé enn hægt. Einnig hitti ég stundum félagsráðgjafa sem kostaði ekkert fyrir mig og það var hjálplegt. Það er einn heimilislæknir hér sem hefur hjálpað mörgum sem glíma við andlegar áskoranir. En það vantar stað þar sem fólk getur hist og fengið stuðning,“ segir Halla.

„Ég hef verið í Hugarafli í nokkur ár og var þar þegar covid skall á. Þegar fjöldatakmarkanir voru settar á voru fundirnir strax færðir yfir á Zoom. Ég sótti þá fundi og þeir hjálpuðu mér mjög mikið. Þegar fundir máttu aftur vera í húsi var ákveðið að halda áfram að bjóða upp á suma fundi á netinu. Ég hef því nýtt mér þessa þjónustu mjög lengi og hún hjálpar mér óendanlega mikið,“ segir Halla. Henni finnst auðvelt að nota þjónustuna og fær hlekki á hvern fund senda í tölvupósti.

„Ég hef sótt alla þessa fundi og upplifi að ég sé þátttakandi í hópunum og skipti máli eins og allir aðrir sem mæta. Ég viðurkenni þó að það sé enn betra að vera á fundum í húsi með fólkinu heldur en að vera á skjá, en það hjálpar mér samt mjög mikið að geta tekið þátt í gegnum fjarfundina. Ég skipulegg dagana mína eftir fundunum og þeir hjálpa mér að halda rútínu. Mér finnst oft erfitt að halda góðri rútínu ef ég þarf ekki að vakna fyrir eitthvað ákveðið og þetta hjálpar mér mikið. Það er mjög erfitt að ná bata með því að vera ein heima allan daginn, með lítið skipulag, enga fræðslu og lítið samneyti við fólk,“ segir Halla.

Mér finnst ég vera hluti af samfélagi í Hugarafli og þátttakan gefur mér tilgang.

Stuðningur frá fólki sem hefur sjálft gengið í gegnum erfiðleika hafi mikið að segja. „Hugarafl eru öflug samtök og starfsfólkið vill gera allt til að hjálpa fólki sem gengur í gegnum andlegar áskoranir. Margir sem vinna þar hafa sjálfir gengið í gegnum slíkt og það hjálpar mikið að fá stuðning frá fólki sem skilur hvað maður er að upplifa. Það gefur líka von um bata. Mér finnst ég vera hluti af samfélagi í Hugarafli og þátttakan gefur mér tilgang.“

#fjarfundaþjónusta #fyrir #fólk #hugarafls #lífsbjörg


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262884011d/fjarfundathjonusta-hugarafls-er-lifsbjorg-fyrir-folk

📰 Aðrar fréttir

Kristnir sæta vaxandi ofsóknum í Kína – handtökur, kirkjulokanir og eftirlit kommúnistastjórnarinnar
📅 22.10.2026 👁️ 1
Kristnir sæta vaxandi ofsóknum í Kína – handtökur, kirkjulokanir og eftirlit kommúnistastjórnarinnar
Kristnir sæta vaxandi ofsóknum í Kína – handtökur, kirkjulokanir og eftirlit kommúnistastjórnarinnar Fréttin22. október 2026Erlent, Mannréttindi, Trúm...
Bresk lyfjayfirvöld afturkalla leyfi bóluefnis eftir alvarlegar aukaverkanir og tilkynningar um dauðsföll
📅 22.10.2026 👁️ 1
Bresk lyfjayfirvöld afturkalla leyfi bóluefnis eftir alvarlegar aukaverkanir og tilkynningar um dauðsföll
Bresk lyfjayfirvöld afturkalla leyfi bóluefnis eftir alvarlegar aukaverkanir og tilkynningar um dauðsföll Fréttin22. október 2026Bólusetningar, Erlent...
Ætlaði að skríða í þrjá daga en horfir fram á sex - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 1
Ætlaði að skríða í þrjá daga en horfir fram á sex - Vísir
Vísir fjallaði á þriðjudaginn um þennan gjörning Axels sem ákvað að sýna í beinu streymi á TikTok frá sér skríða frá Njarðvík til Bessastaða þar sem h...
Hættir við að af­létta ráðningarbanni vegna manndráps - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Hættir við að af­létta ráðningarbanni vegna manndráps - Vísir
Þetta kemur fram í svari félags- og húsnæðismálaráðuneytisins við fyrirspurn Vísis. Vísir greindi frá áformunum á þriðjudag, en Einhverfusamtökin höfð...
Félag atvinnurekenda mótmælir leigubremsu á atvinnuhúsnæði - „Hyggjast skerða samningsfrelsi“
📅 22.10.2026 👁️ 2
Félag atvinnurekenda mótmælir leigubremsu á atvinnuhúsnæði - „Hyggjast skerða samningsfrelsi“
Félag atvinnurekenda (FA) gerir alvarlegar athugasemdir við að fyrirhuguð leigubremsa muni einnig ná til atvinnuhúsnæðis. Engin fullnægjandi rök hafi ...
Öflugur jarðskjálfti af stærð 7,0 skekur Tíbet – óttast umfangsmikið tjón
📅 22.10.2026 👁️ 1
Öflugur jarðskjálfti af stærð 7,0 skekur Tíbet – óttast umfangsmikið tjón
Öflugur jarðskjálfti af stærð 7,0 skekur Tíbet – óttast umfangsmikið tjón Fréttin22. október 2026ErlentLeave a Comment Öflugur jarðskjálfti af stærð 7...
Hafa ekki hugmynd um útbreiðslu ólöglegra peptíða
📅 22.10.2026 👁️ 1
Hafa ekki hugmynd um útbreiðslu ólöglegra peptíða
Engin gögn eru til um hversu útbreidd notkun ólöglegra peptíða er hér á landi. Efnagreining á stórri sendingu sem Tollgæslan haldlagði frá Kína leiddi...
Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingju­söm? - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingju­söm? - Vísir
Fundurinn fer fram í Hátíðarsal HÍ frá klukkan fjögur til fimm. Halla og Sunstein munu sérstaklega ræða hvernig sjónarmið ungs fólks geta mótað stafræ...
Ekki krónu varið í bókakaup á nokkrum leikskólum
📅 22.10.2026 👁️ 1
Ekki krónu varið í bókakaup á nokkrum leikskólum
Til eru leikskólar hér á landi þar sem ekki er gert ráð fyrir að krónu sé varið til bókakaupa vegna fjárskorts. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem G...
Vill bæta eftir­lit með lyfjagjöfum aldraðra - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Vill bæta eftir­lit með lyfjagjöfum aldraðra - Vísir
Málið var tekið upp á Alþingi í dag í kjölfar umfjöllunar fréttaskýringaþáttanna Kompáss um umfang svefnlyfjanotkunar og Kveiks um lyfjanotkun aldraðr...
Starmer gæti þurft að bera vitni vegna nauðgunargengja í rannsókn sem hann fyrirskipaði sjálfur
📅 22.10.2026 👁️ 1
Starmer gæti þurft að bera vitni vegna nauðgunargengja í rannsókn sem hann fyrirskipaði sjálfur
Keir Starmer, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, gæti þurft að bera vitni fyrir rannsóknarnefndinni sem hann sjálfur boðaði til að rannsaka pakis...
Finnskir hvolpar í beinni útsendingu slá í gegn
📅 22.10.2026 👁️ 1
Finnskir hvolpar í beinni útsendingu slá í gegn
Pentulive er komið í loftið í sjötta sinn hjá finnska ríkissjónvarpinu Yle og viðbúið er að áhorfsmet falli. Yfir sex milljónir hafa þegar horft á Pen...
Pútín, Xi og Trump gætu átt „sögulegan leiðtogafund“
📅 22.10.2026 👁️ 1
Pútín, Xi og Trump gætu átt „sögulegan leiðtogafund“
Pútín, Xi og Trump gætu átt „sögulegan leiðtogafund“ Fréttin22. október 2026ErlentLeave a Comment Júrí Úshakov. Vladimír Pútín Rússlandsforseti, Xi Ji...
Fjar­vera Þor­gerðar á pari við for­vera hennar - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Fjar­vera Þor­gerðar á pari við for­vera hennar - Vísir
Þetta kemur fram í skriflegu svari utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu. Samkvæmt útreikningi fréttastofu nemur meðaltal fjarveru utanrík...
Oddur Thorarensen Stefánsson skrifar: Hver ber ábyrgð á árunum sem tapast?
📅 22.10.2026 👁️ 3
Oddur Thorarensen Stefánsson skrifar: Hver ber ábyrgð á árunum sem tapast?
Skólaár byrjar og endar. Næsta skólaár tekur við. Fyrir þann sem bíður eftir nauðsynlegri aðstoð getur þetta þýtt að enn eitt tækifærið líður hjá. Þeg...
Flóttamaður með þrjú nöfn fór huldu höfði eftir nauðgunarákæru – Fingraför komu upp um hann á Keflavíkurflugvelli
📅 22.10.2026 👁️ 2
Flóttamaður með þrjú nöfn fór huldu höfði eftir nauðgunarákæru – Fingraför komu upp um hann á Keflavíkurflugvelli
Meintur nauðgari hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 19. október, en hann hafði verið í felum til að sleppa annars vegar undan ákæru fyrir kyn...
Vilja af­sökunar­beiðni frá Kim vegna jarð­sprengju - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Vilja af­sökunar­beiðni frá Kim vegna jarð­sprengju - Vísir
Yfirvöld í Suður-Kóreu ætla að senda bréf til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna þar sem kallað verður eftir því að ráðamenn í Norður-Kóreu biðjist afsöku...
White Lotus-stjarna bætist í leik­hópinn - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
White Lotus-stjarna bætist í leik­hópinn - Vísir
Bransamiðillinn Hollywood Reporter greinir frá ráðningunni. Spennumyndin Hafið er svart (Dark Ocean á ensku) er framleidd af Glassriver en Baldvin Zop...
Væri eðlilegast að draga umsókn til baka en er ekki á stefnuskránni
📅 22.10.2026 👁️ 3
Væri eðlilegast að draga umsókn til baka en er ekki á stefnuskránni
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segist ekki ætla að styðja þingsályktunartillögu formanna stjórnarandstöðuflokkanna um að draga formlega til ba...
Síminn stoppar ekki vegna heimildar­myndar - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Síminn stoppar ekki vegna heimildar­myndar - Vísir
Myndin er úr smiðju bandaríska sjónvarpsmannsins Nathan Fielder sem gert hefur garðinn frægan með sjónvarpsþáttunum Nathan For You og síðast The Rehea...
Six months of overnight roadworks to begin on the TF-1 this Sunday
📅 22.10.2026 👁️ 3
Six months of overnight roadworks to begin on the TF-1 this Sunday
Night-time traffic restrictions are due to begin on the TF-1 this Sunday, 25th October, as the Tenerife Cabildo starts a six-month programme to resurf...
Gríðar­leg sjúkdómsbyrði meðal niður­staðna - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Gríðar­leg sjúkdómsbyrði meðal niður­staðna - Vísir
Skýrsla vinnuhóps sem Alma Möller heilbrigðisráðherra skipaði í ágúst 2025 var birt í dag. Markmið hópsins var að fjalla um fyrirkomulag heilbrigðisþj...
Eftir­sjá að Eggerti: „Lífið heldur á­fram“ - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Eftir­sjá að Eggerti: „Lífið heldur á­fram“ - Vísir
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, segir stofnunina hafa viljað halda Eggerti áfram. Vísir greindi frá ráðningu h...
Kempa leik­stýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Kempa leik­stýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra - Vísir
Bransamiðillinn Deadline greinir frá tíðindunum. Stóri bróðir/Vigilant er samevrópskt samstarfsverkefni íslenska framleiðslufyrirtækisins ACT4, streym...
Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifs­stöð - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifs­stöð - Vísir
Þetta segir í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp þann 19. október og staðfestur af Landsrétti í gær. Í honum segir að í greinargerð ...
Opnað fyrir tilnefningar til Viðurkenninga FKA - Þú getur tekið þátt í valinu
📅 22.10.2026 👁️ 4
Opnað fyrir tilnefningar til Viðurkenninga FKA - Þú getur tekið þátt í valinu
Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til Viðurkenninga FKA 2027. Atvinnulífið og almenningur eru hvött til að tilnefna konur sem hafa skarað fram úr, ...
Afhjúpar átakanlegan veruleika að baki brúðkaupsþætti Friends
📅 22.10.2026 👁️ 4
Afhjúpar átakanlegan veruleika að baki brúðkaupsþætti Friends
Systir Matthew Perry sagði að hinn frægi þáttur Friends, þar sem persóna hans, Chandler, gengur að eiga Monicu, hafi verið fjölskyldu Perry bæði gleði...
Svarthöfði skrifar: Tók þá fjallið jóðsótt og fæddist lítil mús
📅 22.10.2026 👁️ 4
Svarthöfði skrifar: Tók þá fjallið jóðsótt og fæddist lítil mús
Ekki er laust við að margir hafi hreinlega verið búnir að gleyma Sigurði Inga Jóhannssyni, fyrrverandi formanni Framsóknar. Ugglaust héldu margir að h...
Landsnet og landeigendur ræða aftur saman um Holtavörðuheiðarlínu 1
📅 22.10.2026 👁️ 4
Landsnet og landeigendur ræða aftur saman um Holtavörðuheiðarlínu 1
Landsnet hefur tilkynnt landeigendum á fyrirhugaðri leið Holtavörðuheiðarlínu 1 að viðræður um bætur fyrir land hefjist að nýju á næstunni.Landsnet he...
Landsnet vill ræða aftur við landeigendur um Holtavörðuheiðarlínu 1
📅 22.10.2026 👁️ 3
Landsnet vill ræða aftur við landeigendur um Holtavörðuheiðarlínu 1
Landsnet hefur tilkynnt landeigendum á fyrirhugaðri leið Holtavörðuheiðarlínu 1 að viðræður um bætur fyrir land hefjist að nýju á næstunni.Landsnet he...
Dóttir Kol­brúnar skrifar undir harða við­vörun um leigu­bremsuna - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Dóttir Kol­brúnar skrifar undir harða við­vörun um leigu­bremsuna - Vísir
Karen Áslaug Vignisdóttir, framkvæmdastjóri hagfræði og peningastefnu hjá Seðlabankanum, undirritar umsögn bankans ásamt Flóka Halldórssyni, framkvæmd...
Úkraínskur maður handtekinn í Þýskalandi grunaður um njósnir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Úkraínskur maður handtekinn í Þýskalandi grunaður um njósnir
Úkraínskur maður handtekinn í Þýskalandi grunaður um njósnir Alrík­is­sak­sókn­ari segir mann­inn hafa aflað upp­lýs­inga um fram­leiðslu bryn­var­inn...
Ilhan Omar says 'bizarre' pre-dawn raid on her home is forcing her to move out
📅 22.10.2026 👁️ 4
Ilhan Omar says 'bizarre' pre-dawn raid on her home is forcing her to move out
The congresswoman said federal agents seized over a dozen items, including cell phones and notebooks, as part of a federal investigation.
Maður sem vísa átti úr landi settur í gæsluvarðhald svo hann flýi ekki land
📅 22.10.2026 👁️ 3
Maður sem vísa átti úr landi settur í gæsluvarðhald svo hann flýi ekki land
Landsréttur staðfesti í gær gæsluvarðhald til 16. nóvember yfir karlmanni sem er grunaður um nauðgun. Hann hefur játað sök að hluta. Illa hefur gengið...
Á­rásir hófust áður en gallarnir voru lag­færðir - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Á­rásir hófust áður en gallarnir voru lag­færðir - Vísir
Alvarlegir veikleikar fundust í PHP-forritunarmálinu sem er notað fyrir um sjötíu prósent vefsíðna heimsins. Vegna gallanna var fjölmörgum vefsíðum lo...
Ætlar að halda þing­sætinu þrátt fyrir rann­sókn á svikum - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ætlar að halda þing­sætinu þrátt fyrir rann­sókn á svikum - Vísir
Sænsk yfirvöld rannsaka enn tilraunir hóps manns til þess að kaupa atkvæði í Dölunum í Norður-Svíþjóð í þingkosningunum sem fóru fram í síðasta mánuði...
Margrét Löf vill komast í opið fangelsi - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Margrét Löf vill komast í opið fangelsi - Vísir
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður Margrétar gerir málinu skil í Facebook færslu. Þar gerir hann skóflustungu að nýju fangelsi Stóra-Hrauni að umfjölluna...
Kröfur ESB um endurnotkun umbúða valda fiskútflytjendum áhyggjum
📅 22.10.2026 👁️ 4
Kröfur ESB um endurnotkun umbúða valda fiskútflytjendum áhyggjum
Um níu milljón einnota frauðplastkassar, fullir af ferskum fiski og ís, eru á hverju ári fluttir út frá Íslandi, aðallega með flugi, til viðskiptavina...
Þetta er það sem Harry Bretaprins sér mest eftir - „Af því að ég er prins!“
📅 22.10.2026 👁️ 4
Þetta er það sem Harry Bretaprins sér mest eftir - „Af því að ég er prins!“
Það sem Harry Bretaprins sér hvað mest eftir í lífinu er seinasta símtalið sem hann átti við móður sína, Díönu prinsessu, áður en hún lést í bílslysi ...
Engin staðfest innbrot vegna öryggisgallans
📅 22.10.2026 👁️ 4
Engin staðfest innbrot vegna öryggisgallans
Engin staðfest innbrot hafa orðið vegna öryggisgallans í PHP-forritunarmálinu að sögn Antons Más Egilssonar, forstjóra netöryggisfyrirtækisins Syndis....
French weekend protests to be limited to union demos only, says Macron
📅 22.10.2026 👁️ 4
French weekend protests to be limited to union demos only, says Macron
Some cities including Lyon and Nice have banned all protests, and the French president said only authorised demos would be allowed.
Wintering in the Canaries with Canada and US Tax ties
📅 22.10.2026 👁️ 4
Wintering in the Canaries with Canada and US Tax ties
Every winter, the Canary Islands draw visitors from much further away than Manchester or Madrid. Canadians escaping frozen mornings and Americans chas...
Stjórnvöld buðu leigusala næstum þrefalda leigu fyrir að henda leigjendum út og taka inn hælisleitendur í staðinn
📅 22.10.2026 👁️ 4
Stjórnvöld buðu leigusala næstum þrefalda leigu fyrir að henda leigjendum út og taka inn hælisleitendur í staðinn
Leigusali í Lundúnum segir að fyrirtæki sem útvegar breskum stjórnvöldum húsnæði fyrir hælisleitendur hafi boðið honum 4.500 pund í mánaðarleigu fyrir...
Andrew Tate fárveikur í fangelsinu og lögmaður biður fólk um að biðja fyrir honum
📅 22.10.2026 👁️ 4
Andrew Tate fárveikur í fangelsinu og lögmaður biður fólk um að biðja fyrir honum
Áhrifavaldurinn Andrew Tate, sem er grunaður um kynferðisbrot, er að sögn lögmanns hans fárveikur í fangelsi. Biður hann fólk um að biðja fyrir Tate.B...
Elva Hrönn segir fréttirnar frá París gefa ranga mynd – „Lögreglan í Frakklandi hefur beitt mikilli hörku gagnvart börnum“
📅 22.10.2026 👁️ 4
Elva Hrönn segir fréttirnar frá París gefa ranga mynd – „Lögreglan í Frakklandi hefur beitt mikilli hörku gagnvart börnum“
Elva Hrönn Hjartardóttir, fjáröflunarstýra hjá Amnesty International, er nýkomin frá París. Hún segir fréttir af borginni í ljósum logum gefa ranga my...
Telur rök Há­skólans á Akur­eyri ekki hald­bær - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Telur rök Há­skólans á Akur­eyri ekki hald­bær - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í þremur nýjum skýrslum Ríkisendurskoðunar um stofnanakerfi ríkisins sem kynntar voru fyrir stjórnskipunar- og efti...
Firefighters rescue man trapped in overturned car in Lanzarote
📅 22.10.2026 👁️ 4
Firefighters rescue man trapped in overturned car in Lanzarote
A man was rescued from an overturned car in Lanzarote yesterday afternoon (Wednesday) after firefighters used hydraulic tools to open the driver’s doo...
Ríkisstofnunum fækkað um tæpan fimmtung – starfsfólki fjölgar
📅 22.10.2026 👁️ 4
Ríkisstofnunum fækkað um tæpan fimmtung – starfsfólki fjölgar
Ríkisstofnunum hefur fækkað um 18,7% frá því árið 2020 og telur Ríkisendurskoðun stjórnvöld hafa brugðist við að fullu við tveimur af fjórum tillögum ...
Þorsteinn Már beið lægri hlut gegn Seðlabankanum
📅 22.10.2026 👁️ 4
Þorsteinn Már beið lægri hlut gegn Seðlabankanum
Þorsteini Má Baldvinssyni, fyrrverandi forstjóra Samherja, og lögmanni hans tókst ekki að sýna fram á að hann hefði orðið fyrir miska þó að persónuupp...
How did AI discover the internet's massive cyber-security risk?
📅 22.10.2026 👁️ 4
How did AI discover the internet's massive cyber-security risk?
The BBC's technology correspondent Joe Tidy explains how it happened, and what it means for you.