Kristján Berg Ásgeirsson, oft kenndur við Fiskikónginn, segir að fiskur hafi aldrei verið eins ódýr miðað við annað kjöt á markaðnum.Kristján skrifaði færslu á Facebook-síðu sína í gær, en tilefnið er umræða sem hann heyrði í útvarpinu um fisk og fiskverð.„Ég hlustaði á Bylgjuna í síðustu viku og mig blöskraði hvernig útvarpsmennirnir töluðu niður fisk og fiskverð. Fiskur væri orðinn svo dýr að það væri orðin lúxusvara,” segir Kristján sem hefur rekið fiskverslun í 36 ár.
Fiskikónginum blöskraði þegar hann hlustaði á útvarpið – Svarar fyrir sig og birtir myndir