Fimm sóttu um embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Norðurlands eystra, sem auglýst var 8. maí og umsóknarfrestur rann út 26. maí:
- Erna Björt Árnadóttir, aðstoðarmaður dómara við Héraðsdóm Reykjaness,
- Jón Stefán Björnsson, aðstoðarmaður dómara við Héraðsdóm Reykjaness,
- Margrét Helga Kristínar Stefánsdóttir, lögfræðingur hjá Umboðsmanni Alþingis,
- Sigmundur Guðmundsson lögmaður,
- Þorbjörg I. Jónsdóttir lögmaður.
Umsóknir verða afhentar dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara á allra næstu dögum og stefnt er að því að ákvörðun um skipum liggi fyrir hið fyrsta eftir að umsögn berst ráðherra, samkvæmt vef Stjórnarráðsins.