Bílslys varð á Grindavíkurvegi síðdegis og fimm fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar. Þetta segir Gunnar Jón Ólafsson, bakvaktsstjórnandi hjá Brunavörnum Suðurnesja. Hann segir slysið hafa verið nokkuð harkalegt.
Þrír sjúkrabílar voru sendir á staðinn auk dælubíls og lögreglu. Útkallið barst laust eftir hálf fimm.
Daníel Karlsson, varðstjóri hjá slökkviliði Grindavíkur, segir að slys á fólki hafi ekki verið alvarleg. Annar bíllinn hafi verið á leið frá Bláa lóninu og ekið í veg fyrir hinn sem var á leið til Grindavíkur. Ferðamenn voru í öðrum bílnum.
„Þetta virðist hafa sloppið nokkuð vel,“ segir Daníel sem telur þó að bílarnir séu ónýtir. Þeir voru fluttir burt með kranabíl.
Talsverðar annir hafa verið hjá Brunavörnum Suðurnesja í dag. Vinnuslys varð í sementsverksmiðju með þeim afleiðingum að einn fótbrotnaði. Þá hefur mikið verið um veikindi á svæðinu.
Gunnar Jón segir álagið nokkuð óvenjulegt. „Þetta er búið að vera svolítil törn.“