Ferju með yfir hundrað manns hvolfdi fyrir utan strönd Gvæjana á laugardagskvöld. Að minnsta kosti 67 hefur verið bjargað. Leit yfir að öðrum sem voru um borð stendur enn.
Fyrst var talið að 116 farþegar og 17 skipverjar hefðu verið um borð. Yfirvöld hafa nú greint frá því að farþegalistinn var ekki réttur og því gætu enn fleiri hafa verið í ferjunni.
Ferjan hélt frá höfuðborginni Georgetown til Port Kaituma síðdegis á laugardag og neyðarkall barst frá henni um átta klukkustundum síðar. Ráðherra opinberra framkvæmda sagði í færslu á samfélagsmiðlum að fyrstu upplýsingar bentu til þess að stór alda hefði hvolft ferjunni
Slysið er sagt vera áfall fyrir þessa fámennu þjóð, um ein milljón býr í landinu.