Umboðsmaður Alþingis hefur, í kjölfar ábendingar sem barst embættinu, óskað eftir svörum frá Barna- og fjölskyldustofu um hvort vottorð um öryggisúttekt, vegna nýrrar viðbyggingar, hafi legið fyrir eftir að starfsemi hófst aftur á Stuðlum eftir bruna sem varð þar árið 2024. Liggi slíkt vottorð ekki fyrir fer umboðsmaður fram á skýringar á því hvernig það samræmist ákvæðum laga og reglugerða sem leggi þær skyldur á íslenska ríkið að þau börn sem séu vistuð á Stuðlum séu þar í húsnæði sem uppfylli allar kröfur um öryggi.
Bruninn varð í október 2024 en í honum lést 17 ára piltur sem var í vistun á Stuðlum og starfsmaður slasaðist. Eftir því sem DV kemst næst er bruninn enn til rannsóknar hjá lögreglu.
Í mars síðastliðnum sendi Húsnæðis-. mannvirkja og skipulagsstofnun frá sér skýrslu um brunann en helstu niðurstöður hennar voru þær að alvarlegir annmarkar hefðu verið á brunavörnum, virkni þeirra og eftirliti, sem hafi haft veruleg áhrif á öryggi og mannslíf.
Eftir brunann var ákveðið að Stuðlar yrðu framvegis aðeins fyrir neyðarvistun unglinga og framkvæmdir við umfangsmiklar breytingar á húsnæðinu hafa staðið yfir.
Umboðsmaður Alþingis segir í bréfi sínu til Barna- og fjölskyldustofu að embættinu hafi borist ábending um að mögulega hafi ekki legið fyrir vottorð um öryggisúttekt vegna viðbyggingar við húsnæði Stuðla, að minnsta kosti ekki eftir að starfsemi neyðarvistunar hófst þar aftur eftir brunann.
Reglur og skyldur
Minnir umboðsmaður á að samkvæmt byggingarreglugerð þurfi slík úttekt að liggja fyrir þegar mannvirki sé tekið í notkun.
Óskar umboðsmaður eftir upplýsingum um hvort vottorð um öryggisúttekt liggi fyrir vegna umræddrar viðbyggingar við húsnæði Stuðla. Liggi slíkt vottorð fyrir er þess óskað að umboðsmanni verði afhent afrit af því. Ef slíkt vottorð liggi ekki fyrir er óskað upplýsinga um ástæður þess og hvort unnið sé að því að afla slíks vottorðs og þá hvenær þess sé að vænta.
Liggi ekki fyrir vottorð um öryggisúttekt þá óskar umboðsmaður Alþingis eftir upplýsingum um hvernig það sé talið samrýmast skyldum Barna- og fjölskyldustofu, sem fari með yfirstjórn heimila og stofnana sem ríkinu beri að sjá til að séu tiltæk samkvæmt barnaverndarlögum, að vista börn sem séu svipt frelsi sínu í húsnæði sem mögulega uppfylli ekki öryggis- og hollustukröfur laga og reglugerða um mannvirki og kunni þannig ad hafa verið óheimilt.