Einn lét lífið, en 29 særðust í árásinni en enginn þeirra er talin í lífshættu þótt fjórir séu á gjörgæslu. Abdoul er talinn hafa verið stuðningsmaður eða meðlimur Íslamska ríkisins og er litið á verknaðinn sem hryðjuverk. Nokkrir hafa verið handteknir í tengslum við rannsókn málsins, óvíst er hvort Abdoul Ballout hafi átt samverkarmenn.
Fréttastofa BBC greinir frá.
Bifreið Ballout hafnaði á tréi og flúði hann á hlaupum og stakk minnst einn á flótta sínum en sjónarvottar hafa lýst eggvopni hans sem sveðju. Samkvæmt frétt Berliner Zeitung hefur lögreglunni borist 285 ábendingar um Ballout.
Reiknað er með tugir þúsunda sæki samkomu í miðborg Berlín í dag þar sem fórnarlamba árásarinnar verður minnst. Hinsegin samfélagið í Berlín boðaði til skyndi samstöðufundar við Brandenburgar-hliðið í miðborginni. Ræðumenn stigu á svið og fordæmdu öfgahyggju og gagnrýndu stjórnvöld fyrir skort á stuðningi.
Friedrich Merz kanslari Þýskalands sótti vettvanginn þar sem voðaverkið var framið í Tiergarten garðinum og lagði hvíta rós á jörðina þar sem hafði verið keyrt á konu, ýmsir ráðherrar voru með honum í för. Merz þakkaði viðbragðsaðilum fyrir skjót viðbrögð í ávarpi og ítrekaði að ekki væri pláss fyrir öfgahyggju í þýsku samfélagi. Um þúsund lögreglumenn vinna nú að því að hafa hendur í hári Ballout.