Hlutfall ungs fólks í foreldrahúsum hefur lækkað frá því á síðasta ári og hlutfall fullorðinna á leigumarkaði hefur hækkað. Þetta kemur fram í nýrri búsetukönnun HMS.
Samkvæmt henni eru um 29% fullorðinna á leigumarkaði í ár miðað við 28% í fyrra. Á vef HMS segir að vísbendingar séu um að ungt fólk hafi í ríkara mæli flutt úr foreldrahúsum og farið á leigumarkað.
Minnihluti ungmenna í foreldrahúsum
Um 37% fólks á aldrinum 18 til 24 ára býr nú í foreldrahúsum samkvæmt nýrri búsetumælingu HMS samanborið við 47% í fyrra. Á sama tíma hækkaði hlutfall fólks í þessum aldurshópi á leigumarkaði úr 34% í 45%.
Hlutfall fólks á þessum aldri sem býr í eigin húsnæði lækkaði um eitt prósentustig milli ára, frá 11% í 10%.
Meiri breytingar urðu á búsetudreifingu innfæddra ungmenna en aðfluttra.
73 prósent aðfluttra ungmenna á leigumarkaði
Hlutfall aðflutts fólks á aldrinum 18 til 24 á leigumarkaði hækkaði úr 71% í 73%. Hlutfall þeirra sem búa í foreldrahúsum lækkaði úr 16% í 14%. 4% búa í eigin húsnæði en sú tala helst stöðug milli ára.
Hlutfall innfætts fólks í þessum aldurshópi á leigumarkaði hækkaði úr 23% í 32%. Hlutfall þeirra sem búa í foreldrahúsum lækkaði úr 58% í 48%. Innfæddum ungmennum sem búa í eigin húsnæði fækkaði úr 13% í 12% milli ára.
Flestir á leigumarkaði í Reykjavík
Hlutfallslega eru fleiri fullorðnir á leigumarkaði í Reykjavík en í öðrum sveitarfélögum. Í Reykjavíkurborg búa um 37% fullorðinna í leiguhúsnæði samanborið við 26% í nágrannasveitarfélögum og 21% á landsbyggðinni.
Á landsbyggðinni búa um 7% í eigin húsnæði samanborið við 52% í Reykjavík og 61% í nágrannasveitarfélögum.
Hlutfall einstaklinga á leigumarkaði var á milli 13% og 26% á árunum 2004 til 2016 samkvæmt lífskjararannsókn Hagstofunnar.