Fundur utanríkisráðherra NATO-ríkjanna í Helsinborg í Svíþjóð á morgun verður sá síðasti sem þessi hópur heldur áður en leiðtogafundur bandalagsins verður í Ankara í byrjun júlí.
Gert er ráð fyrir að Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna mæti á þennan fund, og búast má við að hann fái spurningar um nýlegar ákvarðanir stjórnvalda í Washington um að fækka í herliði Bandaríkjanna í Evrópu.
Í gær var tilkynnt að til stæði að fækka um eitt stórfylki (brigade) af fjórum sem Bandaríkjaher heldur úti í Evrópu, og fyrr í þessum mánuði sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti að til stæði að fækka hermönnum í Þýskalandi um fimm þúsund; sú yfirlýsing kom í kjölfar þess að Friedrich Merz Þýskalandskanslari gagnrýndi stjórnvöld í Washington fyrir það sem hann kallaði illa ígrundaða ákvörðun um að ráðast á Íran.
„Hvað þessa ákvörðun varðar, um fjögur til fimm þúsund hermenn sem eru staðsettir tímabundið [í Evrópu], þá hefur þetta ekki áhrif á varnaráætlanir NATO,“ sagði Mark Rutte, framkvæmdastjóri bandalagsins á fundi með fréttafólki hér í Brussel í dag. Rutte benti á að fyrirætlanir Bandaríkjamanna hefðu í langan tíma snúist um að leggja meiri áherslu á ógnir og áskoranir annars staðar í heiminum. „Við vitum að það standa til breytingar og Bandaríkjamenn þurfa til dæmis að horfa meira til Asíu,“ sagði Rutte.
Utanríkisráðherrar bandalagsríkjanna, þar á meðal Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, koma til Helsingborgar á morgun. Tilgangur þessa fundar er ekki síst að undirbúa leiðtogafund bandalagsins í júlí. Búist er við að Trump Bandaríkjaforseti mæti á þann fund, en nokkur spenna hefur ríkt í samskiptum hans við aðra leiðtoga bandalagsríkjanna, ekki síst út af hernaðaraðgerðum Bandaríkjamanna í Mið-Austurlöndum.