Fimmtíu og sex fleiri börn hafa komið í heiminn á fæðingardeild Sjúkrahússins á Akureyri en á sama tíma í fyrra. Deildarstjóri segir aukninguna mjög ánægjulega eftir lægð undanfarin ár.
Fæðingar það sem af er þessu ári eru meira en þrjátíu og fimm prósent fleiri en í fyrra.
Ingibjörg Jónsdóttir hefur tekið á móti börnum á fæðingardeildinni síðan 1990. Hún telur líklegt að þarna sé að verða uppsveifla eftir lægð undanfarinna ára.
„Ég held þetta sé bara þessi eðlilega sveifla sem er alltaf í fæðingum, það koma svona toppar og svo koma lægðir og það er alltaf þannig í gegnum árin“, segir Ingibjörg.
Á Landspítala hafa fæðingar nánast staðið í stað milli ára; um það bil þrettán hundruð börn fæddust þar á fyrstu fimm mánuðum ársins.
Frjósemi á Íslandi hefur verið mæld síðan 1853. Hún hefur aldrei verið eins lág og hún var 2024 og 2025, samkvæmt Hagstofu Íslands.
Því er þessum stóra hópi nýbura á Akureyri fagnað sérstaklega dátt. Ingibjörg segist ekki eiga von á að það dragi úr á árinu.
Hún segir tvær vaktir standa upp úr. 31. mars fæddust sjö börn, sex stúlkur og einn drengur.
Sex drengir á einum degi - þrír fæddust á tuttugu mínútum
Þriðjudaginn 9. júni var svo mikið að gera og sex drengir komu í heiminn. Þrír þeirra vildu ólmir komast í fang foreldra sinna - á sama hálftímanum.
„Fyrsta fæðir hérna 3:06 inni á þessari stofu, bara fullbúin fæðingarstofa. Önnur fæddi á fæðingarstofu sem er hérna hinu megin klukkan 3:16 og þriðja þurfti að fæða hérna á bara svona venjulegri sængurlegustofu klukkan 3:26“, segir Ingibjörg.
Fátítt er núorðið að þrjár konur séu í fæðingu samtímis á Akureyri.
Litli drengurinn þeirra Sveinbjörns Árna Björgvinssonar og Sylvíu Helgadóttur er barn númer 210 á fæðingardeild SAk í ár. Við hittum þau þegar hann var rétt um sólarhrings gamall. Foreldrarnir sögðust hæst ánægðir með piltinn og hrósuðu starfsfólki fæðingardeildarinnar fyrir góða þjónustu.
Hvernig var þetta hjá ykkur, gaf hann mikið boð á undan sér?
„Nei, hann gerði það ekki, ég hélt nú ekki að hann kæmi fyrr en bara kannski í dag, það er búið að ganga svo hægt. Þangað til bara loksins að hann rauk af stað og þetta gerðist bara á innan við klukkutíma held ég“, segir Sylvía Helgadóttir, nýbökuð móðir.