Þar kom fram að fólk ætti í vandræðum með að tengjast samfélagsmiðlinum bæði í símaappi og í tölvu. Fólk átti í erfiðleikum með að skrá sig inn í forritið. Sumir notendur voru skráðir út úr símaforritinu vegna „óvæntrar villu.“
Þá virtist áhrifa gæta hjá Instagram og Messenger, sem einnig eru í eigu Meta, tæknirisa Marks Zuckerbergs.
Meta hefur ekki gefið út útskýringar vegna málsins en miðlarnir virðast aftur hafa komist í lag klukkan 14.20 í dag.
Fréttin hefur verið uppfærð.