Evrópusambandið hefur hleypt af stokkunum opinberri spillingarrannsókn á meintum brotum Peter Mandelson meðan hann var viðskiptastjóri sambandsins frá 2004 til 2008.
Rannsakendur á vegum sambandsins staðfesta við The Telegram að rýnt sé í öll samskipti Mandelson sem finna má í Epstein-skjölunum til að meta hvort hann hafi mögulega gerst sekur um fjársvik, spillingu og alvarlegt misferli þess fjögur ár.
Að öðru leyti vilja rannsakendur fátt segja og ekki er vitað hvort sérstakar ásakanir hafi orðið kveikja rannsóknarinnar. Mandelson sætir lögreglurannsókn í heimalandinu Bretlandi vegna tengslanna við kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein.
Hann var rekinn sem sendiherra Bretlands í Bandaríkjunum vegna málsins, sem hefur veikt stöðu forsætisráðherrans Keirs Starmer verulega.
Hann segir útilokað að hann hefði skipað Mandelson sendiherra hefði hann vitað að hann stóðst ekki öryggisskoðun utanríkisráðuneytisins. Mandelson hefur verið sakaður um að leka viðkvæmum opinberum upplýsingum, sem jafnvel vörðuðu þjóðarhag, í Epstein og þiggja fé fyrir.