ESB fundar með talibönum um endursendingu hælisleitenda
Evrópusambandsríki taka harðari afstöðu gagnvart flóttafólki og leita leiða til að senda fólk úr landi við synjun hælisumsókna.
Sendinefnd talíbana átti viðræður við ESB í Brussel í dag um að flýta fyrir endursendingum hælisleitenda sem fengið hafa synjun til Afganistans. Heimsóknin er fordæmalaus og hefur verið harðlega gagnrýnd af mannréttindasamtökum.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins bauð fimm manna sendinefnd til viðræðna sem hluta af átaki til að sporna við ólöglegum fólksflutningum og auka brottvísanir – þrátt fyrir að Evrópusambandið viðurkenni ekki formlega stjórn talíbana.
„Það er vonast til þess að þessi heimsókn muni opna nýjar leiðir fyrir jákvæð samskipti, styrkja ferlið við að takast á við vandamál Afgana sem búa erlendis og auka enn frekar andrúmsloft samvinnu sem byggir á gagnkvæmri virðingu og sameiginlegum hagsmunum,“ sagði Abdul Qahar Balkhi, talsmaður utanríkisráðuneytisins, sem leiddi sendinefnd talíbana, eftir viðræðurnar.
Talsmaður framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins sagði að 15 aðildarríki ESB hefðu tekið þátt í „tæknilegum fundi“ undir sameiginlegri stjórn Svíþjóðar, sem undirstrikar víðtækan áhuga á framtaki sem gagnrýnendur sögðu ganga í berhögg við gildi 27 ríkja sambandsins.
„Þetta er skammarlegur kafli fyrir Evrópu,“ sagði Cecilia Strada, Evrópuþingmaður úr mið-vinstri hópnum S&D. „Framkvæmdastjórnin er að gefa ríkisstjórn lögmæt sem treður niður réttindi kvenna og stúlkna.“
Evrópskar ríkisstjórnir hafa leitast við að taka harðari afstöðu til aðflutnings fólks þar sem almenningsálitið hefur harðnað og öfgahægriflokkar hafa aukið fylgi sitt víðs vegar um álfuna.
Þar sem komum farandfólks fækkaði árið 2025 hefur ESB beint sjónum sínum að því að styrkja kerfisbundnar endursendingar fólksins. Eins og staðan er núna snúa innan við 30 prósent þeirra sem er gert að yfirgefa landið aftur til heimalands síns.
Framkvæmdastjórnin sagði að viðræðurnar hefðu snúist um mögulega endurkomu Afgana „sem hafa framið alvarlega glæpi og sem stafar öryggisógn af“ og fjölluðu um hagnýt atriði eins og að bera kennsl á þá og gefa út ferðaskilríki.
Þær fylgdu í kjölfar heimsóknar embættismanna ESB til Afganistans í janúar og miðuðu að því að gefa aðildarríkjum, sem bera ábyrgð á að skipuleggja endursendingar, tækifæri til að „koma á sambandi“ við yfirvöld talíbana.
Segja fund ekki viðurkenningu
Fundurinn var sá fyrsti sem embættismenn talíbana áttu með fulltrúum ESB í Brussel.
„Getan til að senda til baka einstaklinga sem ekki hafa lagalegan rétt til dvalar í landinu er hornsteinn trúverðugs og vel starfandi hælis- og fólksflutningakerfis,“ sagði Johan Forssell, ráðherra fólksflutninga í Svíþjóð, eftir viðræðurnar.
Aðildarríki ESB og framkvæmdastjórnin neita því að fundur með embættismönnum talíbana jafngildi því að viðurkenna stjórnina í Kabúl.
En réttindabaráttufólk sagði að samskiptin græfu undan alþjóðlegri stöðu sambandsins í mannréttindamálum og vektu spurningar um hvað ESB væri tilbúið að bjóða talibönum í skiptum fyrir samvinnu um fólksflutninga.
Balkhi sagði að umræðurnar hefðu snúist um að hefja aftur ræðisþjónustu fyrir Afgana í Evrópu, um „að skapa traust“, „árangursríka viðveru“ og „lausn á vandamálum Afgana sem leita hælis í Evrópu, en umsóknum þeirra hefur verið hafnað og þeir standa frammi fyrir fjölmörgum erfiðleikum“.
Sendinefndin átti marghliða og tvíhliða fundi með aðildarríkjum ESB, bætti hann við á X.
Konur búa við helsi
„Þetta er sannarlega löðrungur framan í þau gildi sem Evrópusambandið og Belgía eiga að standa fyrir,“ sagði Ludovic Laus frá Amnesty International við fréttastofu AFP á litlum mótmælafundi fyrir utan skrifstofur framkvæmdastjórnarinnar í belgísku höfuðborginni.
Evrópskar ríkisstjórnir lokuðu sendiráðum sínum í Kabúl þegar yfirvöld talíbana komust aftur til valda árið 2021 og innleiddu ströng íslömsk lög.
„Talíbanar hafa þurrkað konur og stúlkur út úr opinberu lífi“
Konur í Afganistan verða að vera næstum alveg huldar þegar þær fara að heiman og er bannaður aðgangur að fjölda opinberra staða, þar á meðal almenningsgörðum og líkamsræktarstöðvum, á meðan menntun stúlkna lýkur við 12 ára aldur.
„Talíbanar hafa þurrkað konur og stúlkur út úr opinberu lífi,“ sagði Nóbelsverðlaunahafinn Malala Yousafzai – sem var skotin af pakistönskum talíbönum 15 ára gömul og sagðist vera „skelfingu lostin og djúpt brugðið“ yfir boði ESB.
Sem gestgjafaland evrópskra stofnana staðfesti Belgía í gær að hún hefði gefið út fimm eins dags vegabréfsáritanir til fulltrúa talíbana „að undangengnu öryggismati“ – sem giltu aðeins fyrir Belgíu en ekki fyrir hið víðtækara Schengen-svæði þar sem frjáls för ríkir.
Í þessum mánuði varði Magnus Brunner, yfirmaður fólksflutningamála hjá Evrópusambandinu, samskiptin og sagði að Brussel hefði engan annan kost en að ræða við stjórn talíbana um endurkomu farandfólks sem kom ólöglega frá Afganistan.
Milljón hælisumsóknir
Lönd ESB tóku á móti um milljón hælisumsóknum frá Afgönum á árunum 2013 til 2024, samkvæmt hagstofu sambandsins. Hálf milljón umsókna var samþykkt á tímabilinu.
Um 20 af 27 aðildarríkjum ESB hafa lýst yfir áhuga á að senda suma farandmenn án dvalarréttar aftur til Afganistans.
Sum lönd hafa gengið lengra, en Þýskaland hefur vísað meira en 100 Afgönum með sakfellingu úr landi síðan 2024, með leiguflugi sem Katar hefur greitt fyrir, og Austurríki hefur fylgt í kjölfarið.
Mannréttindasamtök hafa dregið í efa lögmæti og siðferði þess að senda farandfólk aftur til lands sem er í miðri alvarlegri mannúðarkrísu, þar sem milljónir standa frammi fyrir hungri og efnahagslegum erfiðleikum, að sögn Sameinuðu þjóðanna.