Drykkja á léttbjórum eða svokölluðum lite-bjórum virðist hafa færst sífellt í aukana á seinustu árum.
Fólk virðist sólgið í færri kaloríur í bjórdrykkju og hafa fyrirtæki ólm svarað þeirri eftirspurn.
Frægasti lite-bjór landsins er þó óneitanlega léttafbrigði Gull-bjórsins, Gull-lite. Sá bjór hefur síðastliðin ár verið söluhæsti bjór Vínbúðarinnar.
Almenn sveifla yfir í lægra áfengisinnihald
Óli Rúnar Jónsson, framkvæmdastjóri Ölgerðarinnar, segir að á undanförnum árum hafi sala og framleiðsla á kolvetnaskertum bjórum 3-4 faldast.
Hann telur að vinsældir bjórsins megi rekja til aukins „kolvetnaflótta“ fólks í dag og sömuleiðis sé almenn sveifla yfir í lægra áfengisinnihald.
„Þessi atriði hafa örugglega sitt að segja í þessu en gæði tel ég hins vegar það sem skiptir neytendur mestu máli þegar kemur að bjórvali.“
Gríðarleg aukning orðið í sölu lite á ölhúsum
Vinsældir lite-bjóra hafa vart farið fram hjá bareigendum landsins og segir Steinþór Helgi Arnsteinsson, annar eigenda Röntgen, að gríðarleg aukning hafi orðið í sölu á lite-bjórum síðustu ár. Hann telur líklegt, líkt og Óli, að fólk hugsi almennt meira um kaloríuinntöku í dag og því sé lite-bjór ákjósanlegri kostur.
„Svo held ég líka bara að Gull hafi tekist að gera sómasamlegan lite-lagerbjór sem er vel drekkandi.“
Steinþór segir vinsældir bjórsins það miklar að lite-bjórinn skili inn 2/3 af allri bjórsölu á Röntgen. Hann segir að aðrir kráareigendur hafi sömuleiðis orðið varir við þessar auknu vinsældir.
Hann segir að nú sé almennt mun minna um að fólk fái sér IPA-bjór eða aðra handverksbjóra. Tískubylgjur ríði oft yfir og lite-bjór sé nú við völd.
„Þetta er trend, eins og gerist með mat, fólk vill allt í einu einhverja sérstaka hamborgara eða pizzu og svo vill fólk bara fara aftur í það klassíska.“
Brugghús svara eftirspurn
Víðir Stefánsson, framkvæmdastjóri Ölvisholts brugghúss, segir ljóst að fólk sækist í auknum mæli í léttari bjóra. Víðir, sem hefur verið lengi í bjórbransanum, segir að seinustu ár hafi vinsældir óáfengs bjórs einnig aukist, áður hafi hann ekki verið nærri jafn vinsæll.
„Áfengisþróun er, að mínu mati, bara þannig að bjórar í dag séu orðnir það góðir að alkóhólprósenta sé ekki endilega aðalmálið.“
Ölvisholt hóf árið 2023 sölu á lite-bjórum og Víðir segir brugghúsið einfaldlega hafa hafið framleiðsluna til þess að svara eftirspurn, allt snúist þetta jú um framboð og eftirspurn. Í dag framleiðir Ölvisholt nokkrar gerðir léttbjóra.
„Þessir lite-bjórar eru bara orðnir gríðarlega stórir.“