Erna Hrund Hermannsdóttir, markaðsfræðingur, áhrifavaldur og hlaðvarpsstjórnandi, og Jón Kristófer Sturluson, starfsmaður Rennslis hafa sett íbúð sína við Skektuvog á sölu.

Erna Hrund dásamar íbúðina og nágranna, en segir að ástæðan fyrir sölunni sé að fleiri svefnherbergi þurfi. Parið á dóttur saman og Erna Hrund tvo drengi frá fyrra sambandi sem þurfa nú sérherbergi.
„Allt bara gott framundan, sumarið er tíminn og allt það. Endilega kíkið á fallegu eignina okkar sem verður saknað sárt. Krakkarnir bara þurfa öll sitt herbergi,“ skrifar Erna Hrund á Instagram.

Íbúðin er 132,4 fm, þar af 20,3 fm geymsla, á jarðhæð í húsi sem var byggt árið 2020. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í alrými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Úr stofu er útgengt á rúmgóðan timburpall.

@ernahrundhermannsÞá er heimilið komið á sölu og tilvalið að henda í góðan house tour! Við elskum þessa íbúð en við þurfum eitt herbergi í viðbót svo allir krakkarnir geti fengið sitt eigið. Við ætlum ekki langt enda dásamlegt hverfi 👏🏻🏡 Hendið í komment ef þið viljið fá link á fasteignavefinn og svo er opið hús í dag🫶🏻☀️
Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.
