Steve Witkoff og Jared Kushner, tveir af helstu erindrekum Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, eru komnir til Úkraínu á fund Volodymyrs Zelensky Úkraínuforseta. Í gær sátu þeir langan fund með forseta Rússlands í Moskvu.
Þetta er fyrsta heimsókn Witkoff og Kusnher til Úkraínu en þeir hafa ítrekað frestað ferðum þangað. Zelensky greindi frá því um hádegisbil að viðræður væru hafnar.
Steve Witkoff og Jared Kushner eru tveir af aðalsamningamönnum Trumps. Witkoff er gamall viðskiptafélagi og Kushner er tengdasonur forsetans.
Viðræður þeirra við Vladimír Pútín Rússlandsforseta í Moskvu í gær stóðu yfir í ríflega þrjár klukkustundir. Eftir að þeim lauk sagði talsmaður rússneskra stjórnvalda Yury Ushakov að samtalið hefði verið einstaklega opinskátt.
Ræddu fleira en Úkraínu
En samkvæmt Ushakov var fleira rætt, til dæmis efnahagasmál og hugsanleg verkefni sem séu „stór í sniðum og hagstæð bæði Bandaríkjunum og Rússlandi.“
Í tilkynningu frá Hvíta húsinu kom fram að á fundinum með Pútín hefðu ítarlegar áætlanir um að ljúka innrásarstríðinu í Úkraínu verið ræddar. Erindrekarnir hafi verið mjög ánægðir eftir fundinn og vonist til að jafn vel gangi í viðræðum við úkraínska ráðamenn í dag.
Viðræður um frið milli Rússlands og Úkraínu hafa síðan í febrúar legið í dvala að mestu, eftir að Bandaríkin og Ísrael hófu stríð gegn Íran.
Nú er aftur kominn skriður á viðræður en hvort þær leiði raunverulega til friðar leiðir tíminn einn í ljós.