Jörð hélt áfram að skjálfa á Reykjaneshrygg og í Bárðarbungu í nótt. Þar hófst skjálftahrina á laugardag.
Stærsti skjálftinn á Reykjaneshrygg í nótt var 3,0 að stærð, 1,8 kílómetra norðvestur af Geirfugladrangi. Þar urðu einnig nokkrir skjálftar um 2,0 eða stærri í gær og í nótt.
Nokkrir skjálftar um og yfir tveimur hafa orðið í Bárðarbungu síðasta sólarhringinn.
Jarðskjálftar eru algengir á báðum þessum stöðum.