Forsætisráðherra segir ríkisstjórnina ekki hafa nein áform um að draga formlega til baka aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu. Staðan nú sé nákvæmlega sú sama og fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu.
Frá því niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið lá fyrir hefur stjórnarandstaðan krafið ríkisstjórnina svara um formlega stöðu aðildarumsóknarinnar – hvort Ísland teljist enn til umsóknarríkis og hvort umsóknin verði formlega dregin til baka.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, notaði fyrsta fyrirspurnatíma þingvetrarins til að biðja forsætisráðherra um að staðfesta að Ísland væri ekki lengur umsóknarríki að Evrópusambandinu.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði að þeir sem hefðu kosið nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni hefðu meðal annars gert það á þeim forsendum að hætt yrði að tala um málið. Það ætlaði ríkisstjórnin að virða en formaður Miðflokksins virtist frekar vilja eyða tíma þingsins í að ræða málið.
Hún sagðist hafa verið mjög skýr um að Evrópuleiðangurinn yrði ekki tekinn upp af þessari ríkisstjórn og staðan væri nákvæmlega sú sama og fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu. „Það getur vel verið að háttvirtur þingmaður syrgi það að hafa þetta mál ekki á dagskrá lengur. Ríkisstjórnin setti það á dagskrá, spurði þjóðina og nú er búið að taka ákvörðun í þessu máli. Ég hef lýst því yfir opinberlega, af því að það hefur komið upp umræða um hvort það eigi að draga umsóknina til baka eða ekki, og ég hef sagt að við munum ekki gera það, ekki frekar en aðrar ríkisstjórnir sem hér hafa verið,“ sagði Kristrún.