Húsið er við Dimmuhvarf 19, var byggt árið 2007 og er á einni hæð með góða lofthæð. Eignin skiptist í fjögur svefnherbergi, þar af eina hjónasvítu, sjónvarpshol, tvö baðherbergi, stofu, borðstofu, eldhús, þvottahús, anddyri og bílskúr.
Emilíana keypti húsið af hjónunum Birni Brekkan Björnssyni og Jennu Lilju Jónsdóttur árið 2013 á 71 milljón króna. Fasteignamatið í dag er rúmar 206 milljónir og ásett verð 250 milljónir.
Gengið er inn í anddyri með fataskápum og þaðan inn í stórt rými með eldhúsi, borðstofu og setustofu með arinn og útsýni yfir Esjuna. Frá stofu er gengið út í garð til suðurs, þar er pallur með heitum potti.
Svefnherbergin eru fjögur í húsinu, þar af eru tvö mjög rúmgóð og annað þeirra er með baðherbergi, „walk-in“ sturtu og svo er útgengt út í garð. Sömuleiðis er hægt að fara úr þvottahúsinu út í garð eða inn í 32 fermetra bílskúrinn.
Nýjar flísar eru í eldhúsinu og granítborðplötur. Gólfhiti er í húsinu sem er bæði með flísar og eikarparket. Reiðstígar eru allt í kringum húsið sem er innarlega í botnlanga og aðeins tveggja mínútna göngufæri frá útivistarsvæði í Elliðaárdal.
Nánar má lesa um eignina á fasteignavef Vísis.