Ellefu milljarða króna sparnaðartillaga felld í borgarráði

Tillögu Kjartans Magnússonar borgarfulltrúa um að hætt verði við smíði Fossvogsbrúar var hafnað á fundi borgarráðs í gær, 30. apríl, af fulltrúum meirihlutaflokkanna auk Sjálfstæðisflokksins. Um er að ræða mestu sparnaðartillögu, sem tekin hefur verið fyrir á vettvangi borgarstjórnar. Með því að hafna tillögunni, slá stuðningsflokkar borgarlínunnar skjaldborg um Fossvogsbrú.
Bókun Kjartans Magnússonar í borgarráði 30. apríl 2026
„Fyrirliggjandi tillaga um að hætt verði við smíði Fossvogsbrúar, er sennilega mesta sparnaðartillaga, sem flutt hefur verið á vettvangi borgarstjórnar. Leitt er að slíkri tillögu sé hafnað, án skoðunar, af stuðningsflokkum borgalínuverkefnisins, þ.e. fulltrúum Sjálfstæðisflokksins og vinstri flokkanna, enda hefur aldrei verið meiri þörf á aðhaldi í opinberum fjármálum en nú.
Fossvogsbrú yrði 270 metra löng stálbrú, sem tengja á saman tvö jaðarsvæði, Kársnes og Nauthólsvík. Brúin mun hafa mjög takmarkaðan almennan tilgang og flest bendir til þess að hún verði óarðbær og hafi neikvætt núvirði eins og borgarlínuverkefnið í heild sinni. Margar aðrar samgönguframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu eru arðbærar og miklu þarfari
Ljóst er að kostnaður við brúarsmíðina verður ekki undir ellefu milljörðum króna. Vegna gífurlegs kostnaðar ætti að hætta við Fossvogsbrú og verja fénu til þarfari framkvæmda. Ljóst er að hægt væri að stórbæta strætisvagnatengingar milli Nauthólsvíkur (Háskólans í Reykjavík) og Kópavogs með aðgerðum, sem kosta myndu um 1% af áætluðum kostnaði við Fossvogsbrú."
30. apríl 2026:
Tillaga Kjartans Magnússonar, borgarfulltrúa Miðflokksins, um að hætt verði við smíði Fossvogsbrúar
„Lagt er til að teknar verði upp viðræður við ríkisvaldið og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu um að hætt verði við smíði Fossvogsbrúar. Þess í stað fari það fé, sem ætlað hefur verið í brúarsmíðina, í aðrar samgöngubætur á höfuðborgarsvæðinu. Þá verði strætisvagnatengingar milli Reykjavíkur og Kópavogs bættar með því að vestari hluti Vesturhlíða verði lagfærður og gerður að svokallaðri strætógötu, þar sem einungis yrði heimilaður akstur strætisvagna og neyðarbifreiða."
Greinargerð
Áformað er að Fossvogsbrú verði 270 metra löng stálbrú, sem tengi saman tvö jaðarsvæði: Kársnes og Nauthólsvík. Brúin mun hafa mjög takmarkaðan almennan tilgang. Ekki er gert ráð fyrir bílum á brúnni heldur einungis gangandi og hjólandi umferð, auk borgarlínuvagna. Brúin mun hafa lítil áhrif til styttingar fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur, fyrir utan þá sem eru einungis á ferð milli þessara jaðarsvæða.
Flest bendir til þess að Fossvogsbrú verði óarðbær og hafi neikvætt núvirði eins og borgarlínuverkefnið í heild sinni. Þá skýtur skökku við að svo dýr nýframkvæmd sem þessi sé sett í forgang þegar ljóst er að margar aðrar samgönguframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu yrðu mun arðsamari og þarfari. Kostnaður við Fossvogsbrú var lengi vel hulinn þoku og voru kostnaðaráætlanir stórlega vanmetnar. Áætlaður heildarkostnaður við mannvirkið hefur margfaldast frá upphaflegri áætlun og nú er ljóst að hann verður varla undir ellefu milljörðum króna. Vegna stökkbreyttra kostnaðaráætlana Fossvogsbrúar en takmarkaðs ávinnings, ætti að hætta við verkefnið í heild sinni.
Bættar strætisvagnatengingar milli Nauthólsvíkur (Háskólans í Reykjavík) og Kársness hafa verið ein helsta röksemdin fyrir Fossvogsbrú. Ljóst er að hægt er að bæta þessar tengingar með miklu minni tilkostnaði en fyrirhuguð Fossvogsbrú hefði í för með sér. Er því lagt til að strætisvagnatengingar milli Reykjavíkur og Kópavogs verði bættar með því að vestari hluti Vesturhlíðar (lokaður vegarkafli í sunnanverðri Öskjuhlíð) verði lagfærður og gerður að svokallaðri strætógötu, þar sem einungis yrði heimilaður akstur strætisvagna og neyðarbifreiða. Strætógatan myndi síðan tengjast eystri hluta Vesturhlíðar og Suðurhlíð. Með slíkri aðgerð væri unnt að bæta strætisvagnatengingar við Háskólann í Reykjavík og aðra starfsemi í Nauthólsvík verulega, ekki síst í þágu íbúa Kópavogs og annarra nágrannasveitarfélaga.