Að minnsta kosti ellefu voru drepnir og átján særðust þegar bíl hlöðnum sprengiefni var ekið á eftirlitsstöð í norðurhluta Pakistan í dag. Grunur leikur á að að árásin hafi verið sjálfsmorðsárás. Enn hefur enginn lýst yfir ábyrgð á árásinni.
Fyrr í þessum mánuði voru að minnsta kosti 31 drepinn í árás á höfuðstöðvar lögreglunnar í Kohat í norður Pakistan. Stjórnvöld í landinu segja að vígasveitir frá Afganistan beri ábyrgð á árásunum en talibanar neita því.
Árásirnar hafa aukið spennu milli landanna og fyrr í vikunni gerði pakistanski herinn loftárásir í Afganistan sem Pakistanar segja að hafi beinst gegn vígamönnum í Afganistan.