Eldur logar í Bryggjuhverfinu

SlökkviliðsbílarMyndin tengist ekki fréttinni beint
Mynd: Víkingur
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins brást við með miklu viðbragði og sendi fjóra dælubíla, tvo körfubíla og allan tiltækan mannskap á vettvang eftir að tilkynning um eldinn barst klukkan 10:32. Þetta kemur fram í frétt RÚV.
Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu var unnið við þak hússins þegar eldurinn kviknaði. Sjúkrabílar voru einnig sendir á staðinn en enginn þurfti að fara á sjúkrahús.
Slökkvistarf stendur enn yfir. Eldurinn hefur náð að dreifa sér í klæðningu þaksins og því þurfa slökkviliðsmenn að rífa upp bárujárnsplötur til að komast að glæðunum og slökkva eldinn.