Leikstjórinn Rob Reiner var myrtur þann 14. desember ásamt eiginkonu sinni, Michele Reiner. Þau láta eftir sig fjögur uppkomin börn en sonur þeirra, Nick Reiner, hefur verið ákærður fyrir morðin.Eldri bróðir Nick, Jake Reiner, hefur nú veitt sitt fyrsta viðtal síðan harmleikurinn átti sér stað. Þar staðfesti Jake það sem marga grunaði, að hann hafi ekki átt í samskiptum við yngri bróður sinn síðan Nick var handtekinn.
Eldri sonur Rob Reiners rýfur þögnina eftir morðin - „Ég mun aldrei skilja hvers vegna þetta gerðist“