Flugvirkjar Icelandair fara að óbreyttu í ótímabundið verkfall eftir viku, miðvikudaginn 23. september.
Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segir að ekki hafi verið ákveðið hvenær næsti fundur verður í deilunni.
„Formlegur fundur hefur ekki verið boðaður því það hefur ekki verið tilefni til þess. Það hefur verið leitað allra leiða sem okkur hefur hugkvæmst til að fá fólk til að semja eða fallast á að það verði bornar fram einhverjar sameiginlegar tillögur til lausnar en það hefur ekki tekist fram að þessu.“
Freista þess að leggja fram tillögu
„Við höldum áfram samtali á milli aðila og reynum að leggja fram einhvers konar tillögu komist málið á þann stað, til dæmis innanhústillögu, formlega miðlunartillögu eða einhvers konar aðra tillögu.“
Flugvirkjar vilja meiri hækkun
Viðræður Flugvirkjafélags Íslands, Samtaka atvinnulífsins og Icelandair um nýjan kjarasamning hafa staðið yfir síðan í nóvember 2025. Töluvert ber á milli aðilanna.
„Flugvirkjum hafa staðið til boða sömu almennu hækkanir og markaðurinn hefur allur fengið en þeir líta svo á að vegna aðstæðna sem varða fyrri samninga eigi þeir óbætta leiðréttingu sem þeim beri vegna fyrri tíma,“ segir Ástráður.
Flugvirkjar hafa bent á að í síðasta kjarasamningi hafi þeir fallið frá kröfum sínum, meðal annars um afturvirkni og verðtryggingu, til að taka tillit til erfiðrar stöðu flugfélagsins vegna covid-faraldursins. Flugvirkjar hafi því dregist aftur úr í launakjörum miðað við samanburðarhópa.
Mikil áhrif á flugáætlun Icelandair
Atkvæðagreiðslu félagsmanna Flugvirkjafélags Íslands lauk í hádeginu á mánudag og niðurstaðan var afgerandi. Verkfallsboðun var samþykkt með 88,3 prósentum greiddra atkvæða.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, sagði í viðtali við fréttastofu um helgina að nái félagið ekki að gera samning við Flugvirkjafélag Íslands áður en verkfall skelli á hafi það veruleg áhrif á flugáætlun félagsins. Verið sé að meta möguleg áhrif á farþega.