Tveir litháeskir karlmenn á fertugsaldri voru þann 14. júlí dæmdir í Héraðsdómi Reykjaness fyrir innbrot og þjófnað á heimili í Hafnarfirði þann 27. febrúar árið 2024. Mennirnir brutust inn í íbúð á fyrstu hæð í götu í Hafnarfirði, með því að spenna upp svaladyr. Stálu þeir skartgripum úr íbúðinni að verðmæti rúmlega tvær og hálf milljón króna.Tvímenningarnir voru ekki viðstaddir réttarhöldin og var kveðinn upp dómur í fjarveru þeirra. Þeir voru báðir dæmdir í þriggja mánaða fangelsi. Dómurinn var skilorðsbundinn vegna þess að tafir urðu á rannsókn málsins.
Ekki næst í þjófa sem dæmdir voru fyrir að stela skartgripum fyrir milljónir af heimili í Hafnarfirði