Þingvallanefnd segir sér ekki heimilt að veita leyfi án dómsúrskurðar til að opna gröf og komast að beinum þjóðskáldsins Jónasar Hallgrímssonar vegna DNA-sýnatöku. Þessi niðurstaða fékkst á fundi nefndarinnar 6. maí. Iðulega hafa verið uppi bollaleggingar að í gröfinni hvíli danskur bakari en ekki Jónas.
Fundargerðin birtist á vef Þingvallaþjóðgarðs í gærkvöld og er henni gerð skil á mbl.is. Bein Jónasar voru flutt heim frá Kaupmannahöfn 1946 og eftir langar deilur var ákveðið að finna þeim stað í þjóðargrafreitnum á Þingvöllum við hlið skáldsins og athafnamannsins Einars Benediktssonar.
Fjölmiðlakonan Elín Hirst fer fyrir hópi þess fólks sem stendur að umsókninni ásamt Páli Valssyni sagnfræðingi sem skrifaði ævisögu Jónasar sem kom út árið 1999. Þingvallanefnd voru um miðjan apríl kynnt áform um gerð heimildarmyndar um Jónas Hallgrímsson, ævi hans og störf ásamt þeim áhrifum sem hann hefur haft á samfélag og menningu Íslands.
Eftir Jónas liggur aragrúi ljóða og kvæða ort undir margvíslegum bragarhætti og eins þýðingar. Jónas var mikilhæfur nýorðasmiður og bjó til fjölda orða sem Íslendingum nútímans eru töm á tungu.
Fæðingardagur hans hefur verið dagur íslenskrar tungu í þrjátíu ár. Lárus Jónsson og Halldór Hilmisson kvikmyndaframleiðendur hjá Republik koma einnig að málinu auk Kára Stefánssonar taugalæknis, Kristjáni Val Ingólfssyni fyrrverandi vígslubiskup og Agnari Helgasyni líffræðilegum mannfræðingi.