„Það kyngdi niður snjó og marga daga í eftir voru aðstæður erfiðar,“ segir Ágúst og að bílar hafi verið fastir og það megi að mestu rekja til þess að fólk var ekki á nógu góðum vetrardekkjum eða jafnvel á sumardekkjum. Hann hvetur fólk til að finna vetrardekkin og panta sér tíma á bílaverkstæði tímanlega því það geti verið bið. Rætt var við Ágúst í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
Það sé hlýtt núna og fólk hugsi eflaust með sér að það þurfi ekki að skipta strax en Ágúst segir gott að hafa tímann með sér. Það þurfi að skoða dekkin vel og fyrir vetrarfærð þurfi mynsturdýptin að vera í það minnsta þrír millimetrar samkvæmt lögum.
„Ef en við erum núna með dekk sem eru þrír millimetrar og við ætlum að athuga hvort það sleppi ekki og dugi. Þrír millimetrar í nóvember verða ekki þrír millimetrar í apríl,“ segir Ágúst og hvetur fólk til að setja standardinn aðeins hærra.
„Það er stundum talað um fjóra til fimm millimetra frekar að vetri.“
Hann segir að ef fólk er í vafa geti sérfræðingar á bílaverkstæðum skoðað dekkin.
Hann segir til dæmis að munurinn á hemlunarvegalengd á sumardekkjum og vetrardekkjum geti verið allt að tvöfaldur í snjó.
Dekk miðað við aðstæður
„Á fimmtíu kílómetra hraða í þjöppuðum snjó sem er orðinn háll, þá eru vetrardekkin að stoppa á 25 til 30 metrum en sumardekkin hafa verið að mælast á allt að 55 til 60 metra. Þá erum við að við á fimmtíu kílómetra hraða að fara yfir Laugardalslaugina og gott betur.“
Hann segir að í glærustu hálkunni sé enn munur á góðum vetrardekkjum og nagladekkjum.
„Við tölum um hvert ertu að fara og hvernig aðstæðurnar eru á þínu svæði,“ segir hann og að þó svo að flestir komist upp með að vera á góðum vetrardekkjum þá þurfi fólk sem býr á svæðum þar sem er snjóþungt, mikil hálka og léleg vetrarþjónusta að vera á annars konar dekkjum, með nöglum.
Ágúst segir góð vetrardekk eiga að duga allt að þrjá vetur en það fari eftir því hversu mikið fólk ekur og hversu þungur bíllinn er.
Spurður hvort enn sé verið að nota keðjur segir Ágúst að flutningabílstjórar noti þær yfir heiðarnar. Snjómoksturstæki séu oft á keðjum og þegar það er snjóþungt sé gott að nota þær og eiga þær í mjög erfiðum aðstæðum.
„Það má almennt,“ segir hann um hvort það megi og að í umferðarlögum sé talað um keðjur og nagla og að fólk aki miðað við aðstæður og að dekkin séu nógu góð fyrir þær aðstæður sem fólk er að aka við.
Póstkort á rúðunni dugi ekki til
Ágúst segir rúðusköfurnar líka þurfa að vera í lagi og til bílsins. Það sé ekki nóg að skafa „eitt lítið póstkort“ á framrúðunni og í rigningu og snjókomu sjái fólk ekki gangandi og hjólandi nægilega vel.
„Þú sérð ekki hvert þú ert að fara, það er grundvallaratriði í umferðinni.“
Annað sem Ágúst segir hættulegt sé snjór á þakinu sem gæti runnið yfir rúðuna og fólk missi útsýni sitt.
„Kústur og skafa.“
Ágúst hvetur fólk til að skoða dekkin, panta tíma á bílaverkstæði og ekki bíða eftir fyrsta snjónum.