Rússneska njósnaskipið Yuri Ivanov er álíka langt og varðskipið Þór. Það var utan landhelginnar vestur af landinu þegar þyrlu Landhelgisgæslunnar var flogið að því í gær. Rússnesk herskip eru mikið á ferðinni austan við land og nær Noregi og norður við Barentshaf. Sjaldgæft er að þau séu vestur af landinu.
Njósnaskipið sinnir fyrst og fremst upplýsingaöflun og eftirliti, segir Jónas G. Allansson skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu Utanríkisráðuneytisis. Ráðuneytið og Landhelgisgæslan hafa náið samstarf.
„Við höldum áfram að fylgjast mjög náið því eins og öðrum skipum og flugvélum sem koma hér frá Rússlandi. Það gera bandalagsríkin líka okkar líka og við deilum upplýsingum okkar á milli. Það er engin sérstök ástæða til að hafa miklar áhyggjur af þessu skipi,“ segir Jónas.