„Maður er að hlaupa og slökkva elda allan tímann,“ segir Atli Dagur Sigurðsson hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku Landspítala sem í gær lauk fjögurra mánaða lyfjameðferð eftir að hafa smitast þar af berklasmiti.
Hann segir stöðuna á deildinni ekkert hafa breyst þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar starfsfólks. Það sé erfitt að horfa upp á sjúklinga liggja á göngum spítalans.
Atli Dagur var einn átta starfsmanna bráðamóttöku Landspítala sem voru útsettir fyrir berklum í byrjun febrúar, en það þýðir að þeir höfðu komist í tæri við berklabakteríuna en voru hvorki veikir né smitandi. Í kjölfarið hófst meðferð og henni lauk í gær.
Loksins búinn
„Ég kláraði sýklalyfjakúrinn við berklum. Hann er loksins búinn,“ segir Atli Dagur.
Og þessu fylgdu ýmsar aukaverkanir. „Fyrst, kviðverkir sem voru frekar sárir. En aðallega fór andlega hliðin svolítið í þessu máli. Að greinast með berkla er ekkert grín, satt best að segja.“
Birtingarmynd aðstæðna
Berklasmitið á bráðamóttökunni var ein birtingarmynd aðstæðna sem sköpuðust á deildinni í febrúar þegar ekki var hægt að leggja sjúklinga þaðan inn á aðrar deildir Landspítala vegna plássleysis.
Hátt í 200 starfsmenn héldu fund og í ályktun þeirra sagði meðal annars að aðstæðurnar á bráðamóttökunni væru svo alvarlegar að þær stefndu öryggi sjúklinga og starfsfólks í hættu á degi hverjum.
Þar væru of margir sjúklingar, brunavörnum væri ábótavant og sömuleiðis sýkingavörnum og persónuvernd.
Landspítali hefur verið á hæsta viðbúnaðarstigi í hátt í tvö ár.
Hleypur og slekkur elda allan tímann
„Ástandið á deildinni hefur ekki breyst, ég get ekki sagt það,“ segir Atli Dagur. „Bráðamóttakan er enn yfirfull og hjá okkur liggur fólk á göngum. “
Til dæmis er erfitt að tryggja svokölluð bráðastæði sem eru ætluð mikið veiku fólki sem þarfnast tækja og ýmiss búnaðar.
Hvernig er að mæta á vakt, mæta í vinnuna í svona aðstæðum?
„Það er andlega „drenerandi“, ef ég má aðeins sletta. Þetta er ótrúlega erfitt að mæta þarna á hverjum degi og geta ekki sinnt sjúklingunum í rauninni. Maður er að hlaupa og slökkva elda allan tímann.“
Ríkisstjórnin verður að grípa það sem gerist utan spítalans
Samkvæmt upplýsingum frá Landspítala liggja þar nú um 80 manns sem bíða eftir að komast á hjúkrunarheimili. Og að mati Atla er kominn tími til að ráðamenn hlusti á starfsfólk bráðamóttöku.
„Við þurfum að geta sinnt gamla fólkinu okkar, sem byggði þetta samfélag. Við þurfum að byggja fleiri hjúkrunarheimili. Við sinnum bara okkar fólki og gerum það eftir bestu getu. En það sem gerist fyrir utan spítalann, verður ríkisstjórnin að grípa. Um leið og þessir hlutir lagast, þá lagast ástandið á spítalanum.“