Bandaríska flugfélagið United Airlines hefur tilkynnt um allt að 20% hækkun á flugmiðaverði í kjölfar hækkunar á eldsneytiskostnaði vegna stríðsins í Íran.
Þetta kom fram á ársfjórðungsuppgjörsfundi félagsins á miðvikudag.
Andrew Nocella, framkvæmdastjóri og yfirmaður viðskiptasviðs, segir að verð á hvern seldan flugmiða síðar á árinu sé nú 20 prósentum hærri en fyrir sömu ferðir félagsins á liðnu ári.
Forstjóri félagsins, Scott Kirby, sagði að markmið United sé að vega upp að fullu hækkun eldsneytisverðs með hærri fargjöldum, og að það verði gert eins hratt og mögulegt er.
Félagið gerir ráð fyrir að verð þurfi að haldast á bilinu 15–20% yfir fyrra ári til að tryggja viðunandi framlegð til lengri tíma, sérstaklega ef eldsneytisverð helst hátt.
Þrátt fyrir hækkanirnar segja stjórnendur að eftirspurn sé áfram sterk. Engin merki hafi enn komið fram um samdrátt í bókunum, þrátt fyrir hækkanir á bæði fargjöldum og farangursgjöldum frá því átökin hófust.
Frá áramótum hefur félagið innleitt fimm almennar verðhækkanir, að mestu til að mæta hækkandi eldsneytiskostnaði. Þróunin hefur verið hröð að því er segir í frétt Fox News Business; eftir að miðaverð hækkaði um 4% milli ára í janúar og febrúar, jókst hækkunin í 12% í byrjun mars, 18% síðar í mánuðinum og er nú komin í um 20% fyrir bókanir fram í tímann.
Stjórnendur benda þó á að ef eftirspurn veikist kunni félagið að bregðast við með því að draga úr framboði, til dæmis með færri sætum eða niðurfellingu flugleiða.