Eitt fallegasta hús borgarinnar bíður bjargvættar

Einstakt einbýlishús við Grjótasel 19 í Seljahverfi hefur verið sett á sölu. Um er að ræða 251,6 fermetra hús á þremur hæðum sem teiknað var af arkitektinum Jes Einar Þorsteinssyni og reist árið 1978. Ásett verð eignarinnar er 112 milljónir króna og hefur séð betri daga.
Húsið stendur á friðsælum stað í grónu umhverfi þar sem stór tré umlykja lóðina á öllum hliðum. Byggingin ber skýr einkenni þeirra verka sem Jes Einar er þekktur fyrir og einkennist af listrænu skipulagi og óhefðbundnum lausnum.
Húsið skiptist á þrjár hæðir. Gengið er inn á miðhæð, sem nefnd er götuhæð. Þar fyrir neðan er garðhæð með tengingu við útisvæði eignarinnar og efst er þakhæð. Skipulag hússins er sagt bæði skemmtilegt og sérstakt, með áherslu á rými, birtu og tengingu við náttúruna í kring.
Seljahverfið hefur um árabil verið vinsælt íbúðahverfi fyrir fjölskyldur, meðal annars vegna nálægðar við útivistarsvæði, skóla og þjónustu. Staðsetning hússins við Grjótasel nýtur auk þess mikillar rósemi þar sem gróður og trjágróður skapa skjól og einkalíf.
Samkvæmt sölugögnum er um dánarbú að ræða.